Emil hleypur í minningu Ólafs

Emil Barja leikmaður meistaraflokks karla í körfuknattleik mun reima á sig hlaupaskóna á laugardaginn og ætlar að hlaupa hálft maraþon.

Emil hleypur í minningu Ólafs E. Rafnssonar og munu öll áheit sem hann fær renna í Minningarsjóð Ólafs.

Hér er hægt að heita á Emil

En það eru fleiri körfuknattleiksmenn sem ætla að vaða í þetta hlaup en Sævar Ingi Haraldsson, fyrrum leikmaður liðsins, ætlar einnig að fara hálft maraþon og það gerir hann í nafni Félags CP á Íslandi.

Hér er hægt að heita á Sævar