Daníel og Sævar semja við knattspyrnudeild Hauka

Knattspyrnudeild Hauka hefur samið við þá Daníel Ingvar Ingvarsson og Sævar Orra Valgeirsson en þeir eru báðir fæddir árið 2004 og eru á eldra ári í 3. flokki þar sem Luka Kostic er þjálfari. Þá hafa þeir einnig æft með 2. flokki félagsins undir stjórn Salih Heimir Porca og fengið tækifæri með meistaraflokki.

Daníel Ingvar er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað jafnt á miðju sem og í bakverði.  Hann fór fyrir stuttu síðan á reynslu til skoska stórliðsins Glasgow Rangers þar sem hann stóð sig mjög vel.

Sævar Orri er framherji sem hefur verið mjög iðinn við markaskorun í yngri flokkum félagsins.  Sævar var nýlega valinn í landsliðsúrtak hjá U 16 ára landsliði Íslands og fór hann á reynslu hjá pólska liðinu FC Stadion Śląski í vetur en það lið hefur getið sér gott orð í að búa til leikmenn fyrir ýmis stórlið.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar samningum við þá Daníel og Sævar og bindur miklar vonir við þá í framtíðinni. Stefna deildarinnar er að tryggja framúrskarandi yngri flokkastarf og byggja á uppöldum leikmönnum í meistaraflokkum en um leið að styðja við unga leikmenn sem fá jafnvel tækifæri á erlendri grundu.

Áfram Haukar!

Ljósm. Hulda Margrét

Igor Kostic, þjálfari meistaraflokks karla, og Sævar Orri.

 

Igor Kostic, þjálfari meistaraflokks karla, og Daníel Ingvar.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…