Fréttir skák

Fréttir úr skákinni

  • Uppskeruhátíð Skákdeildar!!!!

    Uppskeruhátíð Skákdeildar Hauka verður næstkomandi föstudagskvöld, 28/5 kl. 20. Það kostar 1.000 kronur inn og bjór og pizza verða í boði á meðan birgðir endast. Skemmtunin verður með hefðbundnu sniði. Þeir sem hafa áhuga vinsamlegast sendið email til aui@simnet.is eða hringið í síma 821-1963 (Aui). Eða bara mætið.

  • Góð mæting á æfingu 18.maí

    20 manns mættu á æfingu þriðjudaginn 18.maí. Tefldar voru 2×9 umferðir eftir monradkerfi. Úrslit voru þessi: 1.Þorvarður Fannar Ólafsson 15v. 2.Stefán Freyr Guðmundsson 14,5 3.Sigurður Sverrisson 14 4.Jón Magnússon 12 5.Sveinn Arnarsson 10,5 6.Ragnar Árnason 10 7-8.Sverrir Þorgeirsson 9,5 7-8.Gísli Hrafnkelsson 9,5 9-14.Daníel Pétursson 9 9-14.Ingi Tandri Traustason 9 9-14.Baldur 9 9-14.Stefán Pétursson 9 9-14.Snorri…

  • Spenna í boðsmótinu

    4 skákir fóru fram mánudagskvöldið 17. maí síðastliðinn. 3 þeirra voru frestaðar, en einni var flýtt frá síðustu umferðinni. Í A-riðli mættust Guðmundur og Sigurbjörn í hörkuskák, þar sem Guðmundur var kominn með yfirburðastöðu, en Sigurbjörn barðist vel. Niðurstaðan varð á endanum jafntefli. Staðan fyrir síðustu umferð: Sigurbjörn 3,5 Sverrir Örn 3 Árni 2,5 Guðmundur…

  • Frestun á frestunum?

    Það lítur út fyrir það að frestuðu skákunum í boðsmótinu verði frestað til mánudags. Þetta verður þó ekki staðfest fyrr en á miðvikudag, 12.maí. Hlutaðeigandi eru beðnir afsökunar á þessum óhjákvæmilegu tilfærslum. P.s. það verður væntanlega ekki mikill friður á Ásvöllum á fimmtudaginn, þar sem Haukar verða íslandmeistarar í handbolta!!! Húrra fyrir þeim!

  • Skákæfing 11.maí

    Heimir Ásgeirsson hafði mikla yfirburði á æfingunni og missti aðeins 1 vinning, með jafnteflum gegn Jóni Magnússyni og Inga Tandra Traustasyni, Skotta kom við sögu, en hún átti erfitt uppdráttar að vanda. Það lítur út fyrir að sumarið sé komið, þar sem mæting hefur verið fremur bágborinn undarfarið. Úrslit urðu sem hér segir: Heimir Ásgeirsson…

  • Árni vann frestuðu skákina

    Halldór Gunnar Haraldsson og Árni Þorvaldsson áttust við í frestaðri skák úr 3.umferð í boðsmótinu á föstudagskvöldið. Svo fór að Árni vann í endatafli. Það er því ljóst að Sverrir Örn og Árni munu tefla hreina úrslitaskák um sæti í A-flokknum í síðustu umferðinni. Sverri, sem mun stýra hvítu mönnunum, dugir jafntefli í skákinni. Staðan…

  • Barátta í 4.umferð boðsmótsins

    Margar spennandi skákir voru í 4. umferðinni sem fram fór fimmtudaginn 6.maí. Einni skák var frestað, en þeir Sigurður og Jóhann Helgi munu eigast við 13.maí, en þá verða flestar frestuðu skákanna tefldar. A-Riðill Fyrsta skákin til að klárast þetta kvöld varð óvænt skák Árna og Sigurbjarnar. Sigurbjörn fékk strax álitlega stöðu og eftir slæman…

  • 4. umferð í boðsmótinu

    4. umferð í boðsmótinu fer fram 6.maí næstkomandi. Þeir sem mætast eru eftirfarandi: A-Riðill Sverrir Þ.-Guðmundur Halldór-Sverrir Örn Árni-Sigurbjörn B-Riðill Gísli-Ragnar Ingi-Auðbergur Þorvarður-Stefán C-Riðill Gísli P.-Daníel Heimir-Einar Páll-Snorri D-Riðill Sigurður-Jóhann Helgi Sveinn-Jón Davíð-Stefán

  • Æfing 4.maí

    Mæting var í meðallagi á æfingu þann 4. maí, en alls mættu 15. Úrslit voru sem hér segir: Jón Magnússon 14 Þorvarður Fannar Ólafsson 14 Ingi Tandri Traustason 13 Stefán Pétursson 11 Snorri Karlsson 9,5 Gísli Hrafnkelsson 9 Grímur Ársælsson 9 Baldur 8 Sveinn Arnarson 8 Sverrir „eldri“ 7 Sverrir Þorgeirsson 7 Ragnar Árnason 4,5…