Fréttir skák

Fréttir úr skákinni

  • Benedikt í Hauka!!

    Benedikt Jónasson (2300) hefur gengið til liðs við Skákdeild Hauka. Benedikt var áður í Skákfélagi Hafnarfjarðar og má því segja að hann sé kominn heim á ný. Skákdeild Hauka fagnar ekki bara góðum skákmanni heldur býður einnig góðan félaga velkominn í hópinn. Velkominn Benni!!

  • Boðsmótið: Flokkakeppnin hafin

    Þann 7. júní síðastliðinn hófst seinni hluti boðsmóts Hauka. Nú eru menn komnir í sína flokka og það mátti glögglega sjá að baráttan verður mikil í mótinu, ef marka má þessu fyrstu umferð. Þess má þó geta að þetta var í raun 2. umferð, þar sem úrslit úr innbyrðisviðureignum í riðlakeppninni gildir. Töfluröðina má sjá…

  • Páll og Einar unnu!!

    Páll Sigurðsson vann Daníel Pétursson 2-0 (atskákir) í kvöld í umspili um að tefla í A-flokki í Boðsmóti Hauka. Einar G. vann Snorra S. Karlsson eftir hraðskákir. Jafnt var, 1-1, eftir atskákirnar en Einar vann svo 2-0 í hraðskákum. Einar keppir því í B-flokki. Boðsmótið heldur áfram annað kvöld kl. 19 á Ásvöllum.

  • Hraðskákmót Íslands (frh).

    Einhverra hluta vegna næ ég ekki að breyta og uppfæra síðustu frétt :o/. Það sem mig langaði til að taka fram er það að auk okkar Stefáns tóku þeir Haukamenn Snorri Karlsson og Gísli Hrafnkelsson þátt í mótinu. Lokastaða okkar varð eftirfarandi: 6. Stefán Freyr 11 7. Þorvarður 10 12-16. Snorri 8,5 18. Gísli 5,5…

  • Búið að draga!

    Búið er að draga í A, B og C flokk í Boðsmóti Hauka. Fyrsta umferð í úrslitum fer fram n.k. þriðjudag 8. júní kl: 19:00 að Ásvöllum. Töfluröð flokkana er eftirfarandi: A-Flokkur 1. Þorvarður Ólafsson 2. Sigurður Sverrisson 3. Heimir Ásgeirsson 4. Sigurbjörn Björnsson 5. Sverrir Björnsson 6. Páll Sigurðsson 7. Jóhann Sigurðsson 8. Stefán…

  • Formaðurinn kom á óvart

    Síðasta umferðin í riðlakeppninni í boðsmótinu fór fram fimmtugainn 27.maí síðastliðinn. Nokkuð var um óvænt úrslit og margar hörkuskákir voru háðar. A-Riðill: Skák kvöldsins í A-riðlinum var viðureign þeirra Sverris Arnar Björnssonar og Árna Þorvaldssonar. Þetta var hrein úrslitaskák um sæti í A-flokknum, þar sem Árni þurfti sigur til að tryggja sér sætið. Þeir lentu…

  • Boðsmót Hauka

    Síðasta umferð í riðlakeppni Boðsmóts Hauka fer fram fimmtudaginn 27. maí kl: 19.00. Þessir mætast í síðustu umferðinni: A-Riðill Sverrir Örn-Árni Guðmundur-Halldór Sigurbjörn-Sverrir Þ. Staðan í A-Riðli: Sigurbjörn 3,5 v Sverrir Örn 3 v Árni 2,5 v Guðmundur 1,5 v Sverrir Þ. 1,5 v Halldór 0 v B-Riðill Auðbergur – Þorvarður Ragnar – Ingi Stefán…

  • Snorri í Hauka.

    Skákdeild Hauka býður Snorra Guðjón Bergsson (2275)velkominn í Hauka. Snorri hefur verið lengstum í Helli og var einn af stofnendum þess félags. Nú hefur Snorri ákveðið að breyta til og ganga í Hauka. Við væntum þess að Snorri verði okkur mikill styrkur og góður félagi.