Fréttir skák

Fréttir úr skákinni

  • Skákæfing 28.desember.

    Páll Sigurðsson og Þorvarður F. Ólafsson sigruðu á síðustu æfingu ársins, sem fram fór í gærkveldi. Þátttakendur voru 13. Gaman var að sjá nýtt andlit, Garðbæinginn Sindra Guðjónsson, og vonandi að hann komi til með að mæta sem oftast. Páll byrjaði á því að leggja Varða (í Skandinavanum) í 1.umferð og fylgdi því eftir með…

  • Haukamenn á stigalista.

    Hér á eftir koma þeir Haukamenn sem eru á stigalista. Þar kom að því að Jón Magnússon kæmist inn á listann. Hann kemur þar sterkur inn með 1740 stig. Til hamingju Jón! Síðan er nokkri sem hækka nokkuð t.d hækkar Daníel um 125 stig. Frábært hjá Daníel sem er búinn að eiga mjög gott ár….

  • Skákæfing 14/12. 2004

    Sigurbjörn Björnsson vann verðskuldaðan sigur á skákæfingunni í gærkveldi. Þátttaka var mjög góð eða 20 manns, sem er næstbesta mætingin í vetur! Eftir tap gegn undirrituðum í 2.umferð, setti Sigurbjörn í fluggírinn og lagði alla andstæðinga sína eftir það! Í upphafi æfingarinnar var undirrituðum falið það hlutverk að sjá um bókhaldið. Undirritaður var þó engan…

  • Jólamót Hauka. Brynjar Ísak vann

    Brynjar Ísak Arnarsson, afabarn Jóns Magnússonar Haukamanns með meiru sigraði á jólamóti barna og unglingastarfs Hauka. Veit voru þrenn verðlaun bæði fyrir stráka og stelpur. Aðalvinninginn á mótinu sem var 2,5 kílóa macintosh dolla vann hins vegar Agnes Linnet í happdrætti eftir mótið, en þá voru einnig nokkrir aukavinningar dregnir út. úrslit urðu annars eftirfarandi:…

  • Síðasta barnaæfing fyrir jól

    Síðasta barnaæfingin fyrir jól verður á morgun, þriðjudag kl. 17.15. Ath að vænst er þess að foreldrar taki þátt í æfingunni með krökkunum (bara á morgun) og þyggi einnig veitingar. Ath einnig að æfingin verður haldin uppi á palli á morgun því salurinn er upptekinn. (aðalinngangur og upp tröppurnar)

  • Skákæfing 7.desember.

    Heimir og Þorvarður urðu efstir og jafnir á skákæfingunni síðastliðið þriðjudagskvöld. Þátttakendur voru 14. Þar sem Heimir bar sigurorð af Þorvarði í innbyrðisviðureign þeirra, mætti svo sem færa rök fyrir því að hann yrði skrifaður á undan í lokastöðunni. Í ljósi mikilla yfirburða Heimis á æfingum í vetur, krafðist Þorvarður hins vegar þess að varpa…

  • 2 Barnaæfingar eftir fyrir jól

    Á æfingu 7. des verður haldið jólamót Hauka og verða veit verðlaun fyrir efstu sæti auk þess sem vinningar verða dregnir út. Á æfingu 14 des sem er síðasta æfingin fyrir jól og áramót verður haldin æfing þar sem foreldrum er boðið að vera með á æfingu og taka þátt í skákinni og fylgjast með…