Fréttir skák

Fréttir úr skákinni

  • 1. Hvítur leikur og vinnur!

    Mér datt í hug að vera með vikulegar þrautir hérna á síðunni. Ætli ég reyni ekki að hafa nýja þraut á hverjum fimmtudegi og birta svo lausnirnar á miðvikudögum. Þeir sem sýna mér rétta lausn á þriðjudagsæfingunum, fá nafnið sitt birt hérna á síðunni ásamt lausninni daginn eftir! 🙂 Varðandi þraut dagsins hugsa margir eflaust…

  • Skákæfing 15.febrúar

    17 voru mættir á æfinguna þann 15.febrúar. Það vántaði nokkra sterka, en það er gaman að sjá hve stór hópur er farinn að láta sjá sig á þessum æfingum. Árni og Sverrir Örn voru í nokkrum sérflokki og misstu aðeins 1 vinning hvor. Sverrir vann Árna, en gerði jafntefli gegn Rögnvaldi og Sverri Þ. Einnig…

  • Skákæfing 8.febrúar 2005

    Skákæfingin í gærkveldi var bæði fjölmenn og sterk. Þátttakendur voru 18 og var teflt 9 umferða monrad með tvöfaldri umferð. Flestir voru sáttir við þetta fyrirkomulag, en þarna eru menn yfirleitt að tefla við verðuga andstæðinga, auk þess að fá tækifæri til að hefna eftir tap. 🙂 Undirritaður náði þeim frábæra árangri að sigra á…

  • Skákæfing 1.febrúar 2005.

    Árni Þorvaldsson vann sannfærandi sigur á skákæfingunni í gærkveldi. Þátttaka var mun betri en fyrir viku síðan, eða 14 manns. Jafnir í 2-3. sæti urðu þeir Jón og Varði. Vegna fjölda heppnissigra auk þess að hella niður kaffi, verður Varði þó að gera sér 3.sætið að góðu! 1. Árni Þorvaldsson 11 2. Jón Magnússon 10…

  • Skákæfing 25.janúar 2005

    Jón Magnússon vann langþráðan og góðan sigur á skákæfingunni í gærkveldi. Sökum góðrar þátttöku Haukamanna á skákþingi Reykjavíkur, sem nú stendur yfir, var mætingin á æfinguna mjög dræm. Af þeim 9, sem lögðu leið sína að Ásvöllum, voru 4 úr fjölskyldu Jóns! 🙂 Tefld var tvöföld umferð allir við alla og byrjuðu tveir efstu menn…

  • Skákæfing 18.janúar 2005

    Alls mættu 13 manns á skákæfinguna í gærkveldi. Líkt og í síðustu viku vantaði nokkra af sterkustu mönnunum, en Haukamenn hafa hafa fjölmennt á Skákþing Reykjavíkur sem nú stendur yfir. Jón Magnússon tók með sér hið bráðefnilega barnabarn sitt, Brynjar Ísak, og stóð þessi 9 ára drengur sig eins og hetja á æfingunni. Úr skákunum…

  • Skákæfing 11. janúar

    Stefán Freyr sigraði alla andstæðinga sína þetta þriðjudagskvöldið. Það vantaði marga fastagesti á æfinguna, enda var Skákþing Hafnarfjarðar um helgina og menn líklega hvíldinni fegnir. Lokastaðan: 1. Stefán Freyr 13v. af 13 2. Jón Magnússon 11,5 v. 3-4. Sverrir Þorgeirsson 10 v. 3-4. Halldór Garðarsson 10 v. 5. Daníel Pétursson 9,5 v. 6. Ingi Tandri…