Fréttir skák

Fréttir úr skákinni

  • Nýr liðsmaður til Hauka!

    FM Tomasz Warakomski, 2420, hefur gengið til liðs við Hauka. Tomasz er nýbúinn að ná sínum fyrst áfanga að stórmeistaratitli í pólsku deildarkeppninni. Tomasz er á leiðinni til Yerewan að taka þátt í Heimsmeistarkeppni unglinga. Hann er fæddur 1989 og er nemandi Aloyzas Kveynis. Velkominn í Hauka Tomasz.

  • Æfing 26.sept

    Tíu manns mættu á æfinguna 26. september og var tefld tvöföld umferð. Heimir vann yfirburðasigur með 17 vinninga af 18 og leyfði einungis sitthvort jafnteflið gegn Varða og Sverri Erni. Sverrir varð annar með 13 vinninga og Varði þriðji með 11,5. Gaman var að sjá tvo nýja menn, Sigurjón Haraldsson og hinn mikla speking Helga…

  • Æfing 12. september

    Æfingin 12. september var hnífjöfn og spennandi og einungis munaði einum vinningi á fyrsta og fimmta sæti. Varði marði sigur fyrir rest með 11 af 13 – tapaði einungis fyrir Inga Tandra og pulsur gegn Heimi og Árna. Heimir, Sverrir Örn og Stefán Freyr komu næstir með 10,5 vinninga og Árni fimmti með 10 vinninga….

  • Skákæfing 19. sept 2006

    11 manns mættu á skákæfinguna á þriðjudaginn var. Nýkrýndur sigurvegari áskorendaflokks, Davíð Kjartansson, mætti og sigraði með fullu húsi. Í öðru sæti 2 vinningum á eftir kom undirritaður, en auk tapsins gegn Davíð lenti hann í Alekínsvarnarmulning að hætti Sverris Arnar. Sverrir þurfti þó að sætta sig við 3-4. sætið eftir að hafa misstígið sig…

  • Úrslit fyrstu æfningar vetursins!

    Þriðjudaginn 29. ágúst hófust Haukaæfningarnar á ný, eftir sumarfrí. Það mættu átta, keppninn var nokkuð hörð, en sjáanlegt að sumir voru hálfryðgaðir eftir langt sumarfrí, þ.á.m. undirritaður. En þessi æfing endaði með sigri Sverris Þ. En Svona fóru herlegheitin. 1. Sverrir Þ. með 13 v. 2. Stefán Freyr með 11 v. 3. Heimir með 10,5…

  • Davíð vann!!

    Haukamaðurinn og FIDE-meistarinn Davíð Kjartansson (2287) var sigurvegari áskorendaflokks Íslandsmótsins í skák. Davíð sýndi mikið öryggi og fékk 8 v. af 9 mögulegum. Davíð vann sér inn rétt til þáttöku í Landsliðsflokki að ári. Til hamingju Davíð!!