Haukar-TK í kvöld.
Haukar og Tk keppa í kvöld á Ásvöllum í Hraðskákkepni Hellis. Það verður byrjað að tefla kl. 19. Allir velkomnir að koma og horfa á.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr skákinni
Haukar og Tk keppa í kvöld á Ásvöllum í Hraðskákkepni Hellis. Það verður byrjað að tefla kl. 19. Allir velkomnir að koma og horfa á.
Miðvikudaginn 26. júlí verður fyrsta tvískákmót Hauka haldið í Haukahúsinu kl. 19:00. Ekki er nauðsynlegt að hafa með sér félaga, dregið verður í lið á staðnum, ekkert mótsgjald og allir eru velkomnir! Reglur um tvískák má finna hér á ensku: http://www.czechopen.net/tournaments/CompleteBughouseChessRules.htm
Átta manns mættu á þessa seinustu æfingu vetrarins. Þetta getur talist nokkuð jöfn æfing. Þó endaði hún með fullu húsi hjá Varða. En Árni og Ingi urðu rétt á eftir honum með fimm vinninga. En svona fór æfinginn. 1. Varði með 7 af 7 2.- 3. Árni og Ingi með 5 4. Geir með 4…
Það mættu átta og endaði æfingin með öruggum sigri Varða sem lét sjá sig eftir smá hlé. Æfingin var nokkuð jöfn. En svona fóru herlegheitin: 1. Varði með 7 af 7 mögulegum 2. Sverrir Þ. Með 5 3. Daníel með 3,5 4.-6. Guðmundur, Kristján og Ragnar með 3 7. Stefán P. með 2,5 8. Geir…
Tíu manns mættu þetta kvöldið, og þetta var bara nokkuð jafnt. Þannig fór að Sverrir Þ. rétt sigraði með hálfum vinningi og voru Ingi og Daníel rétt á eftir , og þar á eftir Stefán P. En svona fór þessi æfing: 1.Sverrir Þ. með 8 af 9 mögulegum 2.-3. Daníel og Ingi með 7,5 4….
Sverrir, sem teflir fyrir Skákdeild Hauka, endaði í 1-3 sæti á landsmótinu í Skólaskák í eldri flokki ásamt 2 öðrum keppendum eftir æsispennandi mót. Sverrir þarf því að fara í aukakeppni um titilinn og riddarann góða en þetta var í 8. sinn sem keppt er í landsmótinu. En fleiri Hafnfirðingar voru með því Svanberg Már…
Í lokaumferðinni í Boðsmótinu urðu úrslitin eftirfarandi A-flokkur Omar-Bjarni 1-0 Stefán F-Jóhann 1-0 Þorvarður-Sigurbjörn 0-1 Lokastaðan: 1-3. Omar Salama 5 1-3. Sigurbjörn Björnsson 5 1-3. Davíð Kjartansson 5 4. Bergsteinn Einarsson 3,5 5-6. Þorvarður Ólafsson 3 5-6. Stefán Freyr Guðmundsson 3 7. Jóhann Helgi Sigurðsson 2 8. Bjarni Sæmundsson 1,5 Hjörvar Steinn sigraði B-flokkinn glæsilega….
Fjórar skákir voru tefldar í Boðsmótinu á mánudagskvöld. A-flokkur Bergsteinn-Omar: 1-0 B-flokkur Svanberg-Hjörvar: 1/2-1/2 C-flokkur Sverrir-Ingi: 1-0 Guðmundur-Einar: 0-1
Skákdeild Hauka hefur tekið að sér fjöltefli í Áslandsskóla næstkomandi föstudag milli kl. 17-18. Er einhver tilbúinn að taka þetta að sér með Varða? Vinsamlegast hafið samband aui@simnet.is eða 821-1963 Aui
Það eru 3 Haukamenn sem að takak þátt í Ólympíumótinu í Tórínó. Þetta eru þeir Aloyzas Kveinys 2532 og Vidmantas Malisauskas 2503 sem að keppa fyrir Litháen. Síðan er Stellan Brynell liðstjóri hjá Svíunum. Við óskum þeim að sjálfsögðu góðs gengis.