Æfing 26.sept

Tíu manns mættu á æfinguna 26. september og var tefld tvöföld umferð. Heimir vann yfirburðasigur með 17 vinninga af 18 og leyfði einungis sitthvort jafnteflið gegn Varða og Sverri Erni. Sverrir varð annar með 13 vinninga og Varði þriðji með 11,5.

Gaman var að sjá tvo nýja menn, Sigurjón Haraldsson og hinn mikla speking Helga Hauksson. Vonandi að þeir mæti sem oftast.

Þá er sérstaklega auglýst eftir Sverri nokkrum junior sem hefur nú svikist undan að mæta þrjár vikur í röð og verður gripið til harðra aðgerða mæti hann ekki á næstu æfingu 🙂

Lokastaðan:
1.Heimir 17
2.Sverrir Örn 13
3.Varði 11,5
4.Árni 11
5.Helgi Hauks 9,5
6.Ingi 8,5
7.Sigurjón 8
8.Stefán P 6
9.Auðbergur 3
10.Ragnar 2,5