Tap gegn Selfoss

Haukar mættu Selfosi um helgina í N1-deild kvenna í handbolta. Leikið var í fyrsta skipti í vetur í Íþróttahúsinu við Standgötu, nýjum heimavelli Haukastúlkna, en þar munu þær leika heimaleiki sína það sem eftir er vetrar. Selfoss var fyrir leikinn í neðsta sæti deildarinnar með 4 stig en okkar stúlkur voru í níunda sæti deildarinnar […]

Strákarnir okkar – áfram Ísland!

Nú þegar leikur landsliðs Íslands og Katar er nýlega hafinn er gaman að vitna í jákvæða frétt í blaðinu Hafnarfjörður sem kom út í dag, en blaðið getur þess að í landsliði Íslands séu níu einstaklingar sem hafa leikið með hafnfirskum liðum í handknattleik.  Haukar geta vel við unað, en af  þessum  níu einstaklingum eru […]

N1 deild kvenna – leikir fluttir frá Ásvöllum í Íþróttahúsið við Strandgötu.

Haukar hafa tekið til þess ráðs að færa leiki félagsins  í N1 deild kvenna í handknattleik í Íþróttahúsið við Strandgötu. Ástæða þessa er mikið álag á íþróttahúsið á Ásvöllum, en segja má að Íþróttamiðstöðin sem tekin var í notkun árið 2001 geti nú vart annað  þeirri eftirspurn sem er eftir æfingum og leikjum. Að sjálfsögðu […]

Góð frammistaða gegn Val dugði ekki til

Haukastelpur mættu í gærkvöld hinu feyki öfluga liði Vals í N1-deild kvenna í handbolta. Leikið var á Hlíðarenda og fór svo að Valsstúlkur höfðu sigur 32-26 sem teljast nú bara fín úrslit fyrir Haukaliðið sem er kornungt og lítið reynt gegn eins og áður sagði gríðarlega öflugu liði Vals. Okkar stelpur voru liði sínu til […]

Íslenska landsliðið í beinni

HM í handbolta heldur áfram í beinni á stóru tjaldi á Ásvöllum. Ísland-Makedónía kl.16:55 í dag (þriðjudag) Ísland-Danmörk kl.19:10 (miðvikudag) Ísland-Katar kl.16:55 (föstudag) Sýningarstjóri er Sigurjón Bjarnason, formaður handknattleiksdeildar og ku hann einnig fara á kostum með sérfræðiáliti sínu á leikjum Íslands. Við hvetjum allt Haukafólk til þess að koma saman og horfa á leiki […]

Ísland – Rússland á breiðtjaldi á Ásvöllum.

Á morgun, laugardag verður leikur Íslands og Rússlands sýndur  og hefst leikurinn kl. 16:55. Á sunnudag verður síðan leikur Chile og Íslands sýndur og hefst leikurinn kl. 14:40.Í liði Íslands leika 6 Haukamenn, Aron Rafn, Stefán Rafn, Ásgeir Örn, Vignir, Þórir og Kári Kristján.  Þá hefur það varla farið fram hjá nokkrum manni að þjálfari landsliðsins […]

Haukasigur í sveiflukenndum leik

Haukar unnu góðan sigur á Val í gærkvöld 23-20 í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Haukar eru því sem áður með gríðarlega öruggt forskot á toppi N1-deildarinnar. Haukar eiga 8 stig á FH sem er í öðru sæti og svo eru heil 12 stig í næstu lið sem eru í þriðja til sjötta sæti með 11 stig. […]

Haukar leika á Hlíðarenda í kvöld

Síðasta umferð N1-deildarinnar fyrir tæplega tveggja mánaða frí fer fram í kvöld og eiga Haukar að leika við Val. Leikurinn fer fram í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda og hefst kl.19:30. Valsarar hafa átt afar misjöfnu gengi að fagna í deildinni það sem af er og eru nú í sjöunda og næst neðsta sæti deildarinnar, tveimur stigum […]

Stefán Rafn Sigurmannsson til Rhein Neckar Löwen

Stefán Rafn Sigumannsson,  einn af lykil leikmönnum Hauka í meistaraflokki félagsins í handknattleik, hefur gengið til liðs við þýska úrvalsdeildarliðið Rhein-Neckar Löwen. Stefán Rafn hefur verið einn af bestu leikmönnum Hauka í N1 deildinni í vetur og  var nýverið valinn besti leikmaður 1.-7. umferðar deildarinnar.  Nú bætist enn ein rósin í hnappagat þessa unga leikmanns, […]

Tíu marka sigur á Aftureldingu

Haukar unnu sannfærandi sigur á Aftureldingu í gær í N1-deild karla í handbolta. Lokatölur urðu 27-17 okkar mönnum í vil en leikið var í Schenkerhöllinni á Ásvöllum. Eins og tölurnar gefa til kynna var sigurinn mjög öruggur og var raunar ljóst nánast frá miðjum fyrri hálfleik að okkar menn myndu aldrei láta þennan leik frá […]