Skrifað undir uppeldissamninga á gamlársdag

Á gamlársdag gengu nokkrar af deildum Hauka frá uppeldissamningum við unga of efnilega leikmenn. Handknattleiksdeild gerði uppeldissamning við þrjár efnilegar stelpur sem eiga eflaust eftir að láta til sína taka í framtíðinni með meistaraflokk félagsins en þær leika með unglingaflokk Hauka og hafa verið mjög vaxandi í vetur, þær eru: Vilborg Pétursdóttir, Íris Thelma Halldórsdóttir […]

Styrktarhappdrætti mfl. karla

Sökum óviðráðanlegra orsaka hefur þurft að fresta drættinum í styrktarhappdrætti mfl. karla í handbolta fram yfir áramót og stefnt er að því að draga í lok janúar. Nánari fréttir um það koma í byrjun janúar.   Alla vinninga má sjá hér (http://haukar.is/handbolti/6673-happdraetti-meistaraflokks-karla-i-handbolta%20). Listi yfir vinningsnúmer verður svo birtur á heimsasíðunni og á Facebook síðu tengdri happadrættinu. […]

Myndataka af landsliðskrökkum í handbolta

Alls voru 28 iðkendur úr handknattleiksdeild Hauka valdir í landsliðsverkefni á vegum HSÍ á árinu sem er að líða. Þetta er einstaklega góður árangur og sýnir vel hið góða starf deildarinnar. Handknattleiksdeildin ætlar að taka mynd af öllum þessum 28 iðkendum á morgun, föstudaginn 20. desember, og vill því biðja þá iðkendur sem taldir eru […]

Jólakveðja frá DB Schenker

Kæra Haukafólk.   Við starfsmenn DB Schenker viljum fá að óska þér og þinni fjölskyldur gleðilegrar hátíðar. Samstarf okkar við Hauka hefur verið sérlega ánægjulegt síðustu árin sem var forsenda þessa að samningur okkar var framlengdur og munu Ásvellir því áfram heita Schenkerhöllin og Schenkervöllurinn.  Vinsamlegast smellið hér til að horfa á jólakveðju frá okkur.  Fyrir […]

Tvær stúlkur í U20 ára landsliðshóp HSÍ

Valinn hefur verið æfingahópur fyrir U-20 ára landslið kvenna sem mun æfa saman í kringum áramótin og taka þátt í æfingamóti með liðum úr Olísdeild kvenna.Haukar eiga tvær stúlkur í þessum hópi og bætast þær við þann góða hóp landsliðskrakka úr hópi yngri flokka handknattleiksdeildar og sýnir vel gott starf deildarinnar. Stúlkurnar tvær eru:Áróra Eir […]

Haukar deildarbikarmeistarar 2013

Fyrsta mark leiksins í dag gaf sannarlega tóninni fyrir það sem myndi vera, stórkostlegt sirkusmark sem endaði með því að Sigurbergur skoraði og FH piltar stóðu bara og horfðu á. Þetta var gott dæmi um það sjálfstraust sem er í liðinu um þessar mundir og í dag áttu FH ingar engin svör við frábærri Haukavörn […]

Öruggur sigur á Fram og Haukar mæta FH í úrslitum

Leikurinn gegn Fram í Strandgötunni í kvöld byrjaði af miklum krafti og sterkur varnaleikur beggja liða var alls ráðandi. Í hálfleik var staðan 10 – 7 fyrir Hauka og því forskoti náðu þeir á síðustu mínútum hálfleiksins. Í seinni hálfleik var eins og allur kraftur væri úr Framliðinu og kom fyrsta mark þeirra ekki fyrr […]

Flugfélag Íslands deildarbikarinn í kvöld í Strandgötunni

Í kvöld og á morgun verður spilaður deildarbikarinn í handbolta, Flugfélag Íslands deildarbikarinn. Fjögur efstu lið Olísdeildarinnar eiga þátttökurétt (Haukar – FH – ÍBV – Fram) og í kvöld verða spiluð undanúrslit. Þar leika okkar strákar á móti Fram en þessi lið mættust í síðasta leik liðanna í deildinni þar sem Haukar höfðu sigur þótt […]

Einn leikmaður Hauka í U20 ára landsliði HSÍ

Adam Baumruk hefur verið valinn í 20 manna æfingahóp fyrir U20 ára landslið HSÍ sem mun æfa saman yfir jólin. Adam hefur verið einn af lykilmönnum toppliðs Hauka í Olís deildinni og hefur sýnt það að hann á heima í þessu liði og má búast við að hann verði einn af lykilmönnum U20 ára liðsins. […]