Elín Klara var valin í úrvalslið HM U20

Elín Klara Þorkelsdóttir var valin í úrvalslið heimsmeistaramóts 20 ára landsliða sem lauk í Skopje í Norður Makedóníu í gær. Hún er fyrst íslenskra handknattleikskvenna sem valin er í úrvalslið á heimsmeistaramótiFrábær árangur hjá Elínu Klöru okkar. Til hamingju Elín Klara

Sara Sif til liðs við Hauka

Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Söru Sif Helgadóttur um að hún leiki með Haukum næstu tvö árin. Sara Sif er 24 ára markvörður sem er uppalin í Fjölni en hefur leikið með Val síðustu þrjú tímabil og þar á undan var hún leikmaður Fram í þrjú tímabil en tvö af þeim lék hún með HK á láni. Sara […]

Rakel Oddný framlengir

Handknattleiksdeild Hauka og Rakel Oddný Guðmundsdóttir hafa framlengt samning sín á milli til næstu þriggja ára. Rakel Oddný sem er 20 ára kemur úr sterkum 2004 árgangi Hauka sem vann til fjölda verðlauna í yngri flokkum. Rakel Oddný spilaði sem vinstri skytta í yngri flokkum en hefur verið að færa sig yfir í vinstra hornið […]

Jakob framlengir

Jakob Aronsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Hauka til næstu tveggja ára. Jakob sem er 22 ára er uppalinn Haukastrákur kom fyrst inn í meistaraflokk félagins tímabilið 2020-2021 og á hann leiki fyrir yngri landslið Íslands. Næstu 2 tímabil eftir það var Jakob mikið að klíma við meiðsli og veikindi sem höfðu áhrif á […]

Berglind framlengir

Berglind Benediktsdóttir hefur framlengt samning sinn við Hauka til næstu tveggja ára. Berglind sem er 25 ára hefur verið í Haukum síðan 2019 og verið mikilvægur hluti af Haukaliðinu síðan þá. Berglind getur leyst allar stöður fyrir utan ásamt því að vera góður varnarmaður og nýtist því Haukaliðinu vel á báðum endum vallarins. Það er […]

Lokahóf handbolta eldri

Lokahóf meistaraflokka handboltans fór fram á dögunum þar sem lokum vetrar var fagnað. Valdi, Ægir og Halli töfruðu fram dýrindis grillveislu sem vakti mikla lukku og voru veitt verðlaun til handa þeim sem þóttu skara framúr. Veislustjórn var í höndum Ingimars Haraldssonar sem þótti standa sig með stakri prýði.      Meistaraflokkur karla: Bestur: Guðmundur […]

Rut Jónsdóttir í Hauka

Rut Arnfjörð Jónsdóttir til liðs við Hauka    Handknattleiksdeild Hauka og Rut Arnfjörð Jónsdóttir hafa skrifað undir samning þess efnis að Rut spili með mfl. félagsins næstu 2 tímabil. Rut sem kemur til liðs við Hauka frá KA/Þór þarf vart að kynna fyrir handknattleiksáhugafólki enda er Rut ein besta handknattleikskona Íslands síðari ára.       Rut sem […]

Vilius Rašimas til liðs við Hauka

Vilius Rašimas hefur gert samning við handknattleiksdeild Hauka um að hann spili með meistaraflokki félagsins næstu 2 árin. Vilius sem er 34 ára hefur varið mark Selfoss í Olísdeildinni undanfarin 4 tímabil. Vilius er frá Litháen og á leiki fyrir landslið sitt. Hann hefur einnig leikið með liðum í Póllandi, Frakklandi og Þýskalandi á sínum ferli. Síðustu ár hefur hann […]

Þráinn og Ólafur framlengja

Þráinn Orri og Ólafur Ægir framlengdu samninga sína á dögunum við handknattleiksdeild Hauka. Ólafur Ægir kom til Hauka frá svissneska liðinu Lakers Stäfa 2019 og Þráinn Orri frá Bjerringbro-Silkeborg í Danmörku 2020. Þráinn og Ólafur hafa verið mikilvægir stólpar liðsins seinustu ár og er áframhaldandi vera þeirra hjá félaginu fagnaðarefni.