Þorkell Magnússon nýr varaformaður handknattleiksdeildar

Þorkell Magnússon tók við varaformennsku í stjórn handknattleiksdeildar Hauka á dögunum úr höndum Sigurjóns Bjarnasonar. Þorkell lék í fjölmörg ár með meistaraflokki Hauka og upp í gegnum alla yngri flokka félagsins og er því öllum hnútum kunnugur innan deildarinnar. Keli leikur reyndar enn reglulega með Haukum 2 og var markahæstur í leik gegn aðalliði félagsins í bikarkeppninni […]

Lærisveinar Patreks Jóhannessonar sækja Ásvelli heim

Síðasti heimaleikur Haukastrákana fyrir jól fer fram að Ásvöllum á fimmtudagskvöldið þegar lærisveinar Patreks Jóhannessonar koma í heimsókn á Ásvelli. Leikurinn hefst kl. 19:30. Stjarnan vann sinn eina leik til þessa um miðjan október þegar liðið lagði Fram að velli með þremur mörkum á heimavelli. Í kjölfarið hefur liðið tapað naumlega gegn HK, Akureyri og Gróttu en […]

Einar Örn missir af fyrri leiknum gegn Naturhause La Rioja

Evrópska handknattleikssambandið úrskurðaði Einar Örn Jónsson í eins leiks bann í gær fyrir að koma í veg fyrir að Pler KC gæti tekið miðju á lokasekúndu seinni leiks Hauka og ungverska liðsins á dögunum. Einar Örn missir því af fyrri leiknum gegn spænska liðinu Naturhause La Rioja í 16 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða sem fer […]

Myndir úr leik Vals og Hauka

Valur og Haukar skildu jöfn að Hlíðarenda í toppslag N1 deildar karla á sunnudag. Með því að velja „Lesa meira“ hér að neðan er hægt að skoða fullt af myndum sem Pétur Haraldsson tók frá leiknum, m.a. má sjá jöfnunarmark Freys Brynjarssonar, undirbúning marksins og lætin sem fylgdu í kjölfarið.             […]

Í fremstu röð

Haukafólk ærðist af fögnuði nú á dögunum þegar Einar Örn Jónsson tryggði liði sínu sigur gegn sterku ungversku liði og sæti í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Áhorfendapallarnir svignuðu undan trylltum dansi fjölmennrar stuðningssveitar þar sem spenna, stress og gleði fengu útrás með þeim hætti sem einungis íþróttaviðburðir geta framkallað. Leikmenn föðmuðust í gleðivímu og ungir […]

Seiglan skilaði jafntefli

Freyr Brynjarsson tryggði Haukum mikilvægt jafntefli gegn Valsmönnum að Hlíðarenda með marki fimm sekúndum fyrir leikslok. Niðurstaðan 20-20 og eru þessi KFUM lið því í tveimur efstu sætum deildarinnar, Valur með eins stigs forskot en Haukar eiga leik til góða. Hefði leikurinn tapast hefðu Valsmenn náð þriggja stiga forystu sem Haukar hefðu einungis átt kost á að […]

Tækifæri til að komast á toppinn

Fyrsta sæti N1 deildar karla er í húfi þegar Haukar halda að Hlíðarenda og mæta Valsmönnum. Leikurinn hefst kl. 16:00 í dag (sunnudag). Fyrir leikinn eru Valsmenn í efsta sæti með 10 stig eftir sex leiki en Haukar í öðru sæti með 9 stig eftir fimm leiki.  Með sigri geta Haukar komist í vænlega stöðu og tyllt […]

Myndir úr leik Hauka og Fylkis

Haukastelpurnar eru komnar á flug og hafa unnið síðustu þrjá leiki. Pétur Haraldsson hefur verið duglegur að smella myndum af Haukaleikjum og með því að velja „Lesa meira“ hér að neðan má sjá fullt af myndum úr leik Hauka og Fylkis fyrr í dag.                       […]

Sannfærandi sigur: Hanna með 18 mörk og Bryndís með 25 skot varin

Haukar unnu sannfærandi sigur á Fylkisstúlkum 30-22 en leiknum var að ljúka að Ásvöllum. Hanna Guðrún Stefánsdóttir fór hamförum í leiknum og skoraði 18 (9) mörk en hún lék allan leikinn fyrir utan. Bryndís Jónsdóttir átti stórleik í markinu og varði 25 skot. Haukastúlkur unnu því þriðja leikinn í röð og skipa sér í sveit […]

Viltu ná þér í miða á stórleikinn á morgun?

Á morgun eiga strákarnir erfiðan útileik fyrir höndum þegar þeir mæta Val að Hlíðarenda. Sigurvegari leiksins skipar sér í efsta sæti N1 deildarinnar. Hægt er að fá gefins miða á leikinn á N1 bensínstöðinni við Hringbraut á milli kl. 14 og 15 í dag (laugardag). Því er um að gera að skella sér í bíltúr og […]