Deildarbikarinn milli jóla og nýárs

Eins og undanfarin ár mun Deildarbikar HSÍ fara fram milli jóla og nýárs, bikarinn fer fram dagana 27. og 28.desember en ekki er enn búið að tilkynna leikstað en undanfarin ár hefur deildarbikarinn farið fram í Laugardalshöllinni. Það var tvísýnt hvort keppnin færi fram í ár en í vikunni var svo tilkynnt að keppnin yrði.  […]

Strákarnir mæta sigursælu liði Akureyrar norðan heiða

Haukastrákarnir fá ekki langa hvíld eftir maraþonleikinn gegn FH um síðustu helgi. Á fimmtudaginn fara þeir norður yfir heiðar og etja kappi við sterkt lið Akureyrar sem er í þriðja sæti N1 deildar karla með 11 stig, einu færra en lið Hauka. Akureyri hefur verið á góðri siglingu í deildinni og unnið fimm leiki í […]

Háspenna og handboltahátíð í Hafnarfjarðarslag

Það var búist við dramatík. Það var búist við spennu. Það var búist við stemmningu. Stórleikur Hafnarfjarðarliðanna í Eimskipsbikarnum stóð undir þessum væntingum og meira til. Tvíframlengdur, hörkuspennandi 80 mínútna leikur þar sem hvort liðið sem var gat farið með sigur af hólmi. Sannkölluð handboltahátíð fyrir þá sem mættu í Krikann og allan þann fjölda […]

Hafnarfjarðarslagur í bikarnum í dag

Það er sannkallaður stórleikur í 8 liða úrslitum Eimskipsbikar karla í dag þegar Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH mætast í Kaplakrika kl. 16. Haukastrákarnir eiga harma að hefna þar sem þeir svarthvítu unnu bikarslaginn fyrir ári í eftirminnilegum og dramatískum leik. Búast má við fjölmenni á áhorfendapöllunum og frábærri stemmningu. Haukafólk er hvatt til að mæta […]

Öruggur sigur á HK

Sigurganga Hauka heldur áfram í N1 deild kvenna. Í gær unnu stelpurnar öruggan sigur á HK 25-34 og eru því komnar með 14 stig og eru sem fyrr í fjórða sæti deildarinnar. Hanna G. Stefánsdóttir var sem fyrr markahæst, að þessu sinni með sjö mörk, en Ramune Pekarskyte kom næst með 6 mörk. Flestar Haukastelpurnar […]

Haukamenn í útlöndum: Ásgeir Örn Hallgrímsson

Ásgeir Örn Hallgrímsson er að leika sitt annað tímabil með GOG-Svendborg í dönsku Jack&Jones úrvalsdeildinni í handknattleik. GOG-Svendborg er eitt allra sigursælasta lið Danmerkur og kemur frá litlum bæ, Gudme, á Suður-Fjóni. Fyrir nokkrum árum sameinaðist GOG liðinu Svendborg frá samnefndum bæ þaðan sem stærsta fyrirtækjasamsteypa Danmerkur A.P. Möller á rætur sínar að rekja. Ásgeir […]

HK – Haukar á laugardaginn í N1-deild kvenna

Á laugardaginn fara fram þrír leikir í N1-deild kvenna. Haukar heimsækja HK heim í Digranesið og hefst sá leikur klukkan 14:00. Haukar eru í 4.sæti deildarinnar með 12 stig en HK í því 7. með 5 stig. Haukar og HK mættust í 2.umferðinni á Ásvöllum og þar fóru Haukar með 14 marka sigur af hólmi […]

Handhafar HSÍ aðgönguskírteina

Á sunnudaginn næstkomandi fer fram enn einn Hafnarfjarðarstórslagurinn og nú í Eimskipsbikarkeppni karla. Fer leikurinn nú fram í Kaplakrika og hefst klukkan 16:00. Handhafar aðgönguskírteina HSÍ sem ætla á bikarleik FH og Hauka í Eimskips bikar karla sem fram fer nk. sunnudag kl.16.00 geta nálgast miða á leikinn nk. laugardag, 5.desember, milli kl.12-14 Í Kaplakrika […]