Haukastelpur taka á móti botnliði Víkings

Haukastelpur unnu öruggan sigur á FH á útivelli um helgina þar sem Hanna Guðrún Stefánsdóttir fór fyrir sínu liði eins og svo oft áður. Í kvöld taka Haukar á móti botnliði Víkings sem er ungt lið sem er að stíga sín fyrstu skref í N1 deild kvenna. Leikurinn hefst kl. 19:30 að Ásvöllum. Síðar í vikunni hefja […]

Akureyri sigraði Eiðsmótið 2010

Eiðsmótið fór fram um helgina í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Á mótinu tóku þátt meistaraflokkar karla frá Akureyri, Fram, Gróttu og Haukum en þessi lið eiga það sameiginlegt að allir þjálfarar liðanna hafa leikið með Haukum í gegnum tíðina. Það eru þeir Rúnar Sigtryggsson, Halldór Ingólfsson, Einar Jónsson og Aron Kristjánsson. Akureyri og Haukar mættust í hreinum úrslitaleik í […]

Haukastelpur náðum fram hefndum

Haukastelpur mættu gríðarlega einbeittar til leiks þegar Stjörnustúlkur komu í heimsókn á Ásvelli á laugardaginn. Þær voru augljóslega staðráðnar í að ná fram hefndum eftir naumt tap í Garðabænum í bikarnum fyrr í vikunni. Þétt vörn og góð markvarsla lögðu grunninn að öruggum sigri sem var síst of stór, 26-22, en Haukastelpurnar leiddu um tíma […]

Haukastelpur úr leik í bikar eftir háspennuleik

Dramatíkin ræður víðar ríkjum en á EM í Austurríki því tvær framlengingar þurfti til svo að úrslit réðust í leik Stjörnunnar og Hauka í átta liða úrslitum Eimskipsbikarkeppni kvenna í gærkvöldi. Haukastelpur spiluðu sinn besta leik á tímabilinu og voru grátlega nærri því að slá bikarmeistarana úr leik á eigin heimavelli. Þegar skammt var til loka venjulegs […]

Ísland – Austurríki beint á Ásvöllum

Ísland leikur í kvöld við lærisveina Dags Sigurðssonar í Austurríki í riðlakeppni EM. Hefst leikurinn kl. 17:00 og verður hann sýndur á Ásvöllum. Við hvetjum alla til að fjölmenna á Ásvelli og njóta leiksins í góðum félagsskap. Veitingar og drykkir verða til sölu á vægu verði.

Eiðsmótið fer fram næstu helgi

Næstu helgi fer fram Eiðsmótið 2010, fjögurra liða mót þar sem taka þátt meistaraflokkar karla frá Haukum, Fram, Gróttu og Akureyri. Mótið er tileinkað minningu Eiðs Arnarsonar, fyrrverandi formanni handknattleiksdeildar Hauka. Leikið verður í Íþróttahúsinu við Strandgötu á laugardag og sunnudag. Ókeypis aðgangur er á leikina og hvetjum við alla handknattleiksunnendur til að fjölmenna í Strandgötuna […]

Sigurbergur áfram hjá Haukum

Sigurbergur Sveinsson verður áfram í herbúðum Hauka. Þýska stórliðið SG Flensburg Handewitt mun áfram fylgjast með leikmanninum og því ekki loku fyrir það skotið að af flutningi Sigurbergs í raðir þeirra verði að veruleika síðar. Engar viðræður áttu sér stað á milli liðanna um mögulega þess að Sigurbergur yrði leystur undan samningi. Sigurbergur verður því […]

Haukastelpur mæta Stjörnunni í bikarnum

Haukastelpurnar mæta Stjörnunni í átta liða úrslitum Eimskipsbikarsins á miðvikudagskvöldið. Leikurinn fer fram í Mýrinni í Garðabæ og hefst kl. 19:30. Ljóst er að um erfiðan leik er að ræða gegn sterku liði Stjörnunnar og stelpurnar þurfa að eiga toppleik til að fara með sigur af hólmi. Markvörður Stjörnunnar, Florentina Stanciu, hefur oft reynst erfiður ljár […]

Ramune semur við Levanger HK

Ramune Pekarskyte hefur samið við norska liðið Levanger HK sem leikur undir stjórn Ágústs Jóhannssonar. Ramune heldur utan að loknu yfirstandandi keppnistímabili þegar samningur hennar við Hauka rennur út. Ramune mun ætíð skipa veigamikinn sess í hjörtum Haukafólks fyrir frábært starf fyrir félagið undanfarin ár þar sem hún hefur verið meðal allra fremstu handknattleikskvenna deildarinnar. […]

Stórleikur í Safamýrinni á morgun

Það verður stórleikur í N1-deild kvenna á morgun þegar Haukastelpur heimsækja Framara heim í Safamýrina. Leikurinn hefst klukkan 15:00. Bæði lið töpuðu síðasta leik sínum í deildinni og bæði gegn Val. Haukar töpuðu með fjórum mörkum 31-27 en Framarar með þremur mörkum 25-22 á heimavelli.   Haukar og Fram mættust í N1-deild kvenna 8.nóvember á […]