Páskafrí-inu lýkur á morgun, Haukar – Stjarnan

Haukar og Stjarnan mætast í N1-deild karla á morgun, annan í páskum að Ásvöllum. Hefst leikurinn klukkan 19:30 eins og aðrir leikir deildarinnar, en það verður leikin heil umferð á morgun. Gengi Hauka í síðustu leikjum hefur heldur betur verið brösugt. Í síðustu fimm leikjum hafa einungis tveir leikir sigrast og það með naumasta mun, […]

2.flokkur leikur í dag í 8-liða úrslitum

2.flokkur karla í handknatleik, sem tryggði sér um síðustu helgi Deildarmeistaratitilinn mætir Stjörnunni í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Fer leikurinn fram á Ásvöllum og hefst hann klukkan 17:00. Við hvetjum alla Haukara til að fjölmenna og hvetja strákana til sigurs, en í liðinu eru margir af efnilegustu handknattleiksmönnum þjóðarinnar.  

Verða Haukar deildarmeistarar í kvöld?

Fjórir hörkuleikir fara fram í N1-deild karla í handknattleik í kvöld. Baráttan er hörð um að fylgja Haukum í úrslitakeppnina en Akureyri, HK, Valur og FH slást um þrjú sæti í úrslitakeppninni. Þá er fallbaráttan hörð þar sem Fram, Stjarnan og Grótta eru í baráttunni. Haukar geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn takist þeim að ná stigi […]

Haukar deildarmeistarar í 3.flokki í handknattleik.

Haukar urðu í gær Deildarmeistarar í 3. flokki karla 2.deild í handknattleik. Liðið tryggði sér titilinn með þæginlegum sigri á ÍBV í Vestmannaeyjum.  Við óskum strákunum og þjálfurum þeirra til hamingju. Átta liða úrslit um Íslandsmeistaratitil hefst strax eftir páska og verður þar hart barist og munu Haukar mæta þar KA. Haukar eignuðust því tvo deildarmeistaratitla […]

Haukar deildarmeistarar í 2.flokki í handknattleik.

Haukar urðu í kvöld deildarmeistarar í 2 flokki karla í handknattleik. Deildin var jöfn og spennandi og úrslit réðust ekki fyrr en á síðasta leik. Við óskum strákunum og þjálfurum þeirra til hamingju. Átta liða úrslit um Íslandsmeistaratitil hefst strax eftir páska og verður þar hart barist. Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta og styðja okkar […]

Tap á heimavelli gegn Val

Það var systkinaslagur á Ásvöllum í kvöld þegar Haukar og Valur mættust í N1-deild karla. Búast mátti við hörkuleik eins og svo oft þegar þessi lið mætast, en Valsmenn þurftu nauðsynlega á báðum stigunum að halda til að koma sér í betri stðu í deildinni eftir hermilegt gengi að undanförnu. Umfjöllun um leikinn má lesa […]

Stórleikur á Ásvöllum í kvöld, Haukar – Valur

Í kvöld fer fram stórleikur í N1-deild karla á Ásvöllum þegar heimamenn í Haukum taka á móti systra félagi sínu, Val. Leikurinn hefst klukkan 19:30 en það er heil umferð leikin í kvöld í N1-deild karla á sama tíma. Það eru einungis fjórar umferðir eftir af deildinni og fara leikar að skýrast á næstu vikum. […]

Fjórði eins marka sigurinn frá áramótum

Haukar lögðu Fram með einu marki í Safamýrinni í kvöld, 32-33 í hörkuleik. Þetta er í fjórða sinn sem strákarnir sigra með einu marki frá áramótum en helmingi leikja þeirra í deildinni hefur lokið með þeim hætti það sem af er liðið ári. Þegar mánuður er uns úrslitakeppnin hefst og strákarnir eiga fjóra leiki eftir […]

Valið hefur verið U-16 ára úrtakshóp karla og kvenna

Í vikunni var tilkynntur æfingahópur hjá u-16 ára landsliði Íslands í karla og kvenna. Stelpumegin eiga Haukar einn fulltrúa en strákamegin eiga Haukar helmingi fleiri eða tvo. Um er að ræða þau, Ragnheiði Sveinsdóttur, Sigurð Njálsson og Adam Hauk Baumruk.   Munu hóparnir æfa þrjá daga í röð, 29.mars til 31.mars. Æfingarnar fara fram í […]

Hanna Guðrún í A-landsliði kvenna

Júlíus Jónasson A-landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik valdi í gær 16 leikmenn til að taka þátt í tveimur leikjum liðsins í páskavikunni sem eru leikir þess í undankeppni EM. Ísland er þar í riðli ásamt Austurríki, Frakklandi og Bretlandi. Leikið er heima og að heiman og komast 2 efstu liðin áfram úr riðlinum. Í þeim hópi […]