Íslandsmeistarabikarinn áfram í Hafnarfirði

Í kvöld tryggðu nágrannar okkar í FH sér Íslandsmeistaratitilinn í N1 deildinni í handbolta. Við óskum FH til hamingju með þennan árangur en FH varð seinast Íslandsmeistari í mfl. karla árið 1992. Eins og Haukamenn muna þá unnum við titilinn í fyrra og höfum unnið hann 8 sinnum síðan árið 2000. Enn er Hafnarfjörður að […]

Góður sigur hjá 2. flokki í gær og leikurinn um gullið framundan

Á Ásvöllum í gærkvöldi var leikið í undanúrslitum í 2. flokki karla í handbolta þegar Haukastrákarnir fengu lið Selfoss í heimsókn. Stillt var upp eins og um meistaraflokks leik væri að ræða og var fín mæting og góð stemmning á leiknum.Haukar fór hægt af stað en náðu fljótlega yfirhöndinni í leiknum og var staðan í […]

Endurgreiðslur niðurgreiðslna – handbolti

Kæru foreldrar/forráðamenn Nú er komið að endurgreiðslu fyrir handboltann. Það sem þið foreldrar þurfið að gera er að senda tölvupóst á gudbjorg@haukar.is með eftirfarandi upplýsingum:1. Nafni iðkanda2. Kennitölu iðkanda3. Nafni greiðanda4. Kennitölu greiðanda5. Reikningsnúmeri og kennitölu greiðandaMillifært er á þá sem hafa greitt gjaldið nú þegar (munið að senda reikningsnúmerið með). Þeir sem hafa skipt gjaldinu […]

Haukar – Selfoss í undanúrslitum á Ásvöllum

Á morgun, þriðjudag, taka strákarnir í 2. flokki á móti Selfossi í 4ja liða úrslitum. Leikurinn hefst kl. 20.00 og verður leikurinn með meistaraflokks umgjörð. Nái strákarnir að sigra spila þeir um gullið. Selfoss er með sterkt lið og skorum við á allt Haukafólk að mæta á Ásvelli og hvetja okkar menn til sigurs. Áfram […]

Silfur hjá Haukastrákum eftir hörkuleik

Eldra ár 5. flokks karla í handbolta lék sitt 5. og síðasta mót í vetur nú um helgina. Eins og á öðrum mótum vetrarins stóðu strákarnir sig með prýði og vantaði bara hársbreidd upp á að þeir ynnu mótið en þeir töpuðu fyrir Íslandsmeisturum Selfoss í æsispennandi leik þar sem Selfoss skoraði úr hraðaupphlaupi á […]

Haukar Íslandsmeistarar 3.flokks kvenna

Fyrsti titillinn hjá handboltanum þetta árið kom í hús nú áðan þegar Haukastelpurnar í 3ja flokki urðu Íslandsmeistarar með sigri á HK 35-33 eftir æsispennandi framlengdan leik. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 30-30 en HK var yfir í hálfleik 16-14. Maður leiksins var valin Elsa Björg Árnadóttir leikmaður Hauka en hún skoraði 7 mörk […]

Góður sigur hjá Haukastelpum í gær og leikurinn um gullið framundan

Unglingaflokkur Haukastelpna í handbolta vann góðan sigur á Gróttustelpum í gær en leikurinn endaði 38-32. Fyrri hálfleikurinn í gær var í járnum og var staðan 15-15 í hálfleik. Haukastelpurnar komu svo tvíelfdar inn í seinni hálfleikinn og var aldrei spurning um hvort liðið ætlaði sér sigur í þessum leik. Með þessum sigri eru stelpurnar komnar […]

Tvær Haukastelpur fóru til Serbíu í dag með U-19 ára landsliðinu

Tvær handboltakonur úr Haukum fóru til Serbíu í dag með U-19 ára landsliðinu til að taka þátt fyrir Íslands hönd í undankeppni fyrir HM. Þetta eru þær Karen Helga Sigurjónsdóttir og Viktoría Valdimarsdóttir.  Liðið er þar í riðli með Finnlandi, Spáni og Serbíu. Leikjaplan Íslands: Föstudagur 22.apríl kl.17.00 Ísland – Serbía Laugardagur 23.apríl kl.13.00 Ísland […]

Frábær þátttaka í handbolta – og körfuboltabúðunum

Það var mikið fjör á Ásvöllum dagana 18. – 20. apríl en þá voru haldnar handbolta – og  körfuboltabúðir fyrir unga iðkendur. Hátt á annað hundrað krakkar tók þátt og var almenn ánægja með þetta framtak. Til að mynda barst okkur þessi tölvupóstur: „Mig langar að þakka kærlega fyrir frábærar handboltabúðir hjá ykkur í Haukunum. […]