Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Góður sigur á KR

    Haukar lögðu KR í gær í Lengjubikar karla í fótbolta 2-0. Það voru þeir Björgvin Stefánsson og Marteinn Pétur Urbancic sem skorðu mörk okkar manna. Mark Björgvins kom á 86. mínútu og Marteinn Pétur innsyglaði svo sigurinn í uppbótartíma. Það má svo sannarlega segja að eftir rólega byrjun í Lengjubikarnum séu okkar menn heldur betur…

  • Haukar mæta KR á fimmtudagskvöld

    Haukar mæta KR í Lengjubikarnum á morgun, fimmtudag, og fer leikurinn fram á KR-vellinum í Vesturbænum kl. 19:00.   Strákarnir okkar unnu góðan sigur gegn Selfossi í síðustu umferð Lengjubikarsins, 1 – 0, þar sem Hilmar Trausti skoraði. Við hvetjum alla Haukamenn til að fjölmenna á leikinn og hvetja okkar menn til sigurs en Haukar…

  • Dregið í happdrætti 2.flokks

    Efnt var til happdrættis til fjáröflunar fyrir æfingaferð drengja í 2.flokki til Spánar í vor. Margir góðir vinningar voru í boði og er ástæða til að þakka öllum stuðningsaðilum kærlega fyrir veittan stuðning, hvort heldur fyrir vinninga eða keypta miða. Laugardaginn 17. mars dró Bjarni Hafsteinn Geirsson framkvæmdastjóri félagsráðs Hauka út vinninga úr seldum miðumog…

  • Óli Jó: Kominn heim! – allir á völlinn á sunnudag

    Haukar mæta BÍ/Bolungarvík í Lengjubikarnum á sunnudaginn í Kórnum og hefst leikurinn kl. 15.50.  Ólafur Jóhannesson, þjálfari Hauka, eða Óli Jó eins og hann er jafnan kallaður hvetur Haukamenn til að fjölmenna á leikinn enda skipti stuðningur áhorfenda miklu fyrir leikmenn fyrir komandi átök.  ,,Ég vil hvetja alla Haukamenn til að koma og fylgjast með…

  • 5.flokkur kvenna Goðamótsmeistari

    Stelpurnar í 5.flokki og 6.flokki kvenna í fótbolta fóru um sl. helgi á Goðamót á Akureyri. Hópurinn skemmti sér afar vel á mótinu og var ferðin vel heppnuð í alla staði. Ekki skemmdi fyrir að stelpurnar stóðu sig líka vel innan vallar og voru félaginu til sóma. A-lið 5.flokks kvenna náði þeim glæsilega árangri að…

  • 5.flokkur kvenna Íslandsmeistari í futsal

    Haukar eignuðust í dag Íslandsmeistara í knattspyrnu þegar 5.flokkur kvenna tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í futsal (innanhússfótbolta). Okkar stúlkur unnu Breiðablik í úrslitaleik en keppt var á Blönduósi. Heimasíðan óskar stelpunum og þjálfurum þeirra þeim Kristjáni Arnari Ingasyni og Kristjáni Sveinssyni til hamingju með þennan frábæra árangur!

  • Tap í fyrsta leik í Lengjubikar

    Meistaraflokkur karla í knattspyrnu lék í dag sinn fyrsta leik í Lengjubikarkeppni KSÍ í dag þegar þeir mættu Breiðabliki í Fífunni. Lokatölur urðu 1-0 Blikum í vil í nokkuð jöfnum leik þar sem Blikarnir voru meira með boltann en okkar drengir vörðust vel og beittu hröðum sóknum. Mark Blika kom í seinni hálfleik upp úr…

  • Guðmundur Sævarsson í Hauka

    Haukum hefur borist gríðarlegur liðsstyrkur í fótboltanum því einn besti hægri bakvörður landsins, Guðmundur Sævarsson skrifaði í gærkvöld undir samning til 1. árs við Hauka. Guðmundur kemur frá FH þar sem hann hefur leikið alla sína tíð, m.a. undir stjórn Ólafs Jóhannessonar sem nú þjálfar Hauka. Guðmundur er 34 ára og á að baki 199…