Titill fréttarinnar
Fjórir Haukastrákar hafa verið boðaðir af landsliðsþjálfurum U17 og U19 á úrtaksæfingar. Þetta eru þeir Úlfar Hrafn Pálssoon og Andri Geir Gunnarssoní U19 og þeir Aron Freyr Eiríksson og Ásgeir Þór Ingólfsson í U17
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr fótboltanum
Fjórir Haukastrákar hafa verið boðaðir af landsliðsþjálfurum U17 og U19 á úrtaksæfingar. Þetta eru þeir Úlfar Hrafn Pálssoon og Andri Geir Gunnarssoní U19 og þeir Aron Freyr Eiríksson og Ásgeir Þór Ingólfsson í U17
Kristrún Lilja Daðadóttir, landsliðsþjálfari U17 ára liðsins, hefur boðað þær Söru Björk, Evu Jenný, Katrínu og Þórdísi Silju á úrtaksæfingar sem fara fram á Akranesi og í Egilshöll núna um helgina 6.-7. janúar. Við óskum þeim góðs gengis á æfingunum.
Meistaraflokkur karla hefur leikið nokkra leiki upp á síðkastið og farið með sigur í þeim öllum. Í byrjun mánaðar var leikið á síðasta Íslandsmóti innanhúss sem KSÍ heldur og unnu Haukar þar sinn riðil með 18-0 sigri gegn Ými, 4-1 á móti Hvöt og 12-1 gegn Hrunamönnum. Fyrir rúmri viku kom Víðir úr Garði í…
Leikur 2. flokks Hauka við Stjörnuna sem fram átti að fara síðasta laugardag var frestað og verður hann leikinn á morgun, þriðjudag, klukkan 19:30 á Stjörnuvelli. Þetta er síðasti leikur 2. flokks á árinu þannig að ég hvet sem flesta til þess að mæta og bera stjörnum framtíðarinnar augum. Áfram Haukar!!!
Fimmtudaginn 21. desember ljúkum við hausttímabilinu formlega með Jólaballi á Ásvöllum frá 16-18. Margs konar skemmtun í boði: landsfrægir jólasveinar kíkja í heimsókn og stýra dansi og söng, leynigestur sýnir töfrabrögð, spilað verður jólabingó, kaffi og ýmislegt meðlæti verður í boði, Þá verða til sölu allir keppnisbúningar Hauka síðan í fyrra á hlægilegu verði: 250…
4. flokkur kvk. Jólafrí. Eftir æfinguna í dag er frí frá æfingum. Við byrjum aftur mánudaginn 15. janúar kl: 17:00-18:00 á gervigrasinu. Æfingaleikur í Fífunni laugardaginn 16. desember. Æfingaleikurinn er við UMFB (Álftanes) Þær sem eiga að mæta kl: 10:45 eru: Sjöfn, Kristín, Linda, Erla, Margrét Sif, Viktoría, Kristín, Herdís, Helga (allar á eldra ári)…
2. flokkur er kominn í úrslit í Íslandsmótinu innanhús en í riðlinum sínum mættu þeir Fram, Víkingi R., KFR og ÍA. Haukarstrákarnir gerður 3 – 3 jafntefli við Fram, unnu ÍA í æsispennandi markaleik 9 – 8, unnu KFR 4 – 1 og unnu Víking líka 6 – 2. Í þessum riðli fengu Haukar 10…
Nú er búið að stofna vefsíðu fyrir 6. flokk karla. Vefstjórinn hefur enga reynslu af þess háttar vinnu, en hann er mjög áhugasamur um að gera líflega og skemmtilega síðu með aðstoð drengjanna, þjálfara og aðstandenda þeirra. Upplýsingum verður komið áfram á þessum vettvangi í framtíðinni. Auðvitað er það von okkar að Haukarnir verði í…
Barna- og unglingaráð Knattspyrnudeildar Hauka boðar foreldrastjórnir allra yngri flokka deildarinnar til sameiginlegs funds þriðjudaginn 12. desember kl. 20:00 á 2.hæðinni í íþróttahúsinu á Ásvöllum. Ef þið sjáið ykkur ekki fært um að mæta, gangið úr skugga um það að ykkar foreldrastjórn eigi fulltrúa á fundinum.
Þær Sara Rakel og Sara Björk hafa báðar verið boðaðar á æfingar U17 ára landsliðsins sem fara fram næstkomandi helgi. Báðar eru þær nýbúnar að ná sér af erfiðum meiðslum en eru greinilega ekki lengi að stimpla sig inn. Haukar hafa átt fjölmarga fulltrúa á æfingum bæði karla- og kvennalandsliðanna upp á síðkastið og eru…