Bikarúrslit yngri flokka á Ásvöllum – Þrjú Haukalið í úrslitum

Bikarúrslit yngri flokka verða um helgina á ÁsvöllumBikarúrslit yngri flokka verða á Ásvöllum um helgina en Haukar eiga þrjú lið í þeim níu úrslitaleikjum sem verða um helgina en það eru 9. flokkur karla, stúlknaflokkur og unglingaflokkur karla.

Umsjón bikarúrslitanna eru í höndum Hauka og verður umgjörð allra leikja afar glæsileg. Þeir verða allir í beinni á HaukarTV og því geta þeir sem komast ekki um helgina að sjá alla þessa efnilegu krakka spila kíkt á netið og horft á leikina. Einnig verða þeir allir í beinni tölfræðiútsendingu og því ætti ekkert að fara framhjá körfuboltaþyrstum netverjum.

Dagskrá helgarinnar:

Laugardagur:
—————-
kl. 10.15 – 9. karla
Haukar – Tindastóll

kl. 12.00 – 10. kvenna
Keflavík – Njarðvík

kl. 14.00 – 11. drengja
Njarðvík/Grindavík – KR

kl. 16.00 – Unglinga kvenna
Snæfell – Keflavík

kl. 18.00 – Unglinga karla
Hamar/ÞórÞ Þ. – Haukar

Sunnudagur:
—————-
kl. 10.15 – 9. kvenna
Grindavík – Keflavík

kl. 12.00 – 10. karla
Höttur – Stjarnan

kl. 14.00 – Stúlknaflokkur
Haukar – Keflavík

kl. 16.00 – Drengjaflokkur
FSu – Njarðvík