Berghildur endurnýjar samning við knattspyrnudeild Hauka

Berghildur Björt Egilsdóttir, fædd árið 2003, hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka sem gildir til ársins 2023.

Berghildur, sem spilar jafnan sem varnarmaður, á að baki 8 leiki með meistaraflokki kvenna í deild og bikar en hún er hluti af ungum og efnilegum leikmannahópi sem hefur verið að spila með meistaraflokki kvenna síðustu tvö keppnistímabil.

Stjórn knattspyrnudeildar fagnar nýjum samningi við Berghildi enda bindum við miklar vonir við hana á komandi árum.