Aron Freyr Róbertsson hefur endurnýjað samning sinn við Hauka

Aron Freyr hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka sem gildir til næsta árs.

Aron Freyr er vel kunnugur á Ásvöllum en hann hefur spilað með Haukum síðustu tvö ár og á 32 leiki með Haukum og skorað 5 mörk.

Aron er 24 ára og er með mikla reynslu af mfl. Hann hefur spilað 119 leiki og 16 mörk í mfl. Getur leyst flestar stöður fremst á vellinum ásamt hægri bakvörð.  Á fjóra landsleiki með U19 og U21 árs landsliðum Íslands.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar nýjum samningi við Aron Frey og bindur miklar vonir við hann á komandi tímabili.

Áfram Haukar

Við undirskrift
Ljósmynd: Hulda

Aron Freyr Róbertsson
Ljósmynd: Hulda