Arnór Pálmi semur við knattspyrnudeild Hauka

Knattspyrnudeild Hauka hefur samið við Arnór Pálma Kristjánsson og gerir hann tveggja ára samning við félagið.

Arnór sem er fæddur árið 2000 er að ganga upp úr 2. flokki í meistaraflokk en hann tók þátt í þremur leikjum með Haukum í Inkasso deildinni síðasta sumar.

Knattspyrnudeild Hauka fagnar samningnum við Arnór og bindur miklar vonir við hann á komandi árum.

Arnór Pálmi og Jón Erlendsson, formaður meistaraflokksráðs karla.