Aðalfundur knattspyrnudeildar Hauka föstudaginn 25. mars kl. 17.00

Aðalfundur knattspyrnudeildar Hauka verður haldinn föstudaginn 25. mars nk. kl. 17.00.

Dagskrá:

1)  Skýrsla stjórnar deildarinnar um starfsemi þess síðastliðið starfsár.

2) Kosning stjórnar deildarinnar. Fyrst skal kosinn formaður, síðan aðrir stjórnarmenn.

3) Önnur mál, sem löglega eru upp borin.

Framboð til formanns og stjórnar skal tilkynna með því að senda tölvupóst á helga@haukar.is fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 22. mars nk.