3 FL. KVK. OG 4 FL. KK YNGRI – BIKARMEISTARAR 2022

Haukar áttu tvö lið í bikarúrslitum yngri flokka þetta árið en leikirnir fóru fram á Ásvöllum síðustu helgi og umgjörð til mikillar fyrirmyndar og þökkum við öllum sjálfboðaliðum kærlega fyrir hjálpina!

Á föstudaginn léku stelpurnar í 3. flokki gegn Fram. Frábær mæting var á leikinn og mikil stemming meðal áhorfenda. Stelpurnar mættu vel peppaðar til leiks og var það aldrei spurning hver væri að fara „heim“ með bikarinn. Barátta og gleði allsráðandi sem skilaði frábærum sigri.

Á sunnudeginum léku strákarnir í 4. flokki karla (yngri) gegn KA. Leikurinn var kaflaskiptur og voru Haukamenn nokkrum mörkum undir þegar einungis nokkrar mínútur voru til leiksloka. Okkar menn lögðu aldrei árar í bát og lönduðu 1 marks sigri 31-30 en lokamarkið kom uppúr hraðaupphlaupi þegar 1 sekúnda var eftir. Vægast sagt dramatískur sigur og ætlaði allt um koll að keyra!

Myndaveisluna frá 4. fl. kk. leiknum er hægt að skoða HÉR á handbolti.is

Við óskum liðunum innilega til hamingju – ÁFRAM HAUKAR !