ACTAVISMÓT 2012

Hið árlega Actavísmót Körfuknattleiksdeildar Hauka  var haldið um helgina í DB Shenkerhöllinni að Ásvöllum!

Mjög góð þátttaka var á mótinu í ár en 93 lið með um 600 strákum og stelpum mættu á mótið í ár ásamt um 1.200 foreldrum og aðstandendum leikmanna. Leikið var á 6 völlum laugardag og sunnudag og voru leikirnir alls 150. Í ár þá tóku lið frá KR, Keflavík, Stjörnunni, Fjölni, Val, Hamri og Breiðablik ásamt gestgjöfunum Haukum þátt í mótinu.

Stuðningsmenn liðanna mættu vel til að styðja sín lið en allir leikmenn sem taka þátt í mótinu eru sigurvegarar og fengu verðlaun frá aðalstyrktaraðila mótsins Actavís í mótslok. Að auki fengu allir leikmenn frítt í sund. Hafnarfjarðarbær styrkti mótið nú eins og undanfarin ár en það hefur nú verið haldið nú í 9 ár samfellt og er mótið orðið árlegur viðburður í íþróttabænum Hafnarfirði.

Einbeiting og leikgleði skein úr hverju andliti leikmanna á mótinu þar sem allir fara heim sem sigurvegarar með verðlaun og bros á vör eftir skemmtilegt mót! Ánægjulegt var einnig að sjá hversu vel var mætt af foreldrum leikmanna og öðrum aðstandendum þeirra til að styðja leikmennina á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.

Mörg frábær tilþrif sáust á mótinu og er greinilegt að margir þeirra leikmanna sem mættu á mótið eiga framtíðina fyrir sér í körfuknattleiksíþróttinni og verða eflaust síðar landsliðsmenn Íslands í körfu.

Hér má finna fjölmargar myndir frá mótinu.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Barna- og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Hauka sá um undirbúning, skipulagningu og framkvæmd mótsins undir styrkri stjórn Brynjars Steingrímssonar mótsstjóra og Gísla Guðlaugssonar formanns barna- og unglingaráðs. Gestir Hauka voru á einu máli um að mótið í ár hafi tekist mjög vel þökk sé um 100 sjálfboðaliðum sem komu úr stjórn og ráðum Körfuknattleiksdeildarinnar ásamt þjálfurnum og leikmönnum í meistara-, unglinga,- stúlkna-, og drengjaflokkum.   

Fyrir hönd Körfuknattleiksdeildar Hauka vil ég þakka öllum þátttakendum á mótinu sem og þeim fjölda sjálfboðaliða sem unnu að mótinu fyrir skemmtilegt mót með von um að enn fleiri láti sjá sig á Actavísmótinu að ári liðnu.

Samúel Guðmundsson
Formaður Körfuknattleiksdeildar Hauka

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…