Ný stjórn knattspyrnudeildar Hauka

Aðalfundur knattspyrnudeildar Hauka var haldinn í gær á Ásvöllum þar sem ný stjórn var kjörin. Halldór Jón Garðarsson, formaður deildarinnar sem var endurkjörinn á fundinum, fór yfir síðasta starfsár, og Karl Guðmundsson, gjaldkeri, fór yfir rekstur.

  • Fjöldi kvenna eykst í stjórn
  • Þjálfarar brugðust vel við COVID-19 með #haukarextra
  • Ný námsskrá knattspyrnudeildar
  • Aukin samlegðaráhrif í þjálfun
  • Styttist í knatthús á Ásvöllum – Bæjaryfirvöld horfa til framtíðar
  • Markmiðið að berjast um sæti í sterkari deildum
  • Fjölga þarf tekjuleiðum og sjálfboðaliðum
  • Reksturinn í jafnvægi og engar skuldir

Ný í stjórn koma þau Elísabet Finnbogadóttir og Haukur Jónsson. Auk fyrrgreindra eru í stjórninni Jón Björn Skúlason, varaformaður, Helga Helgadóttir, ritari, Jón Erlendsson, formaður meistaraflokksráðs karla, Oddný Sófusdóttir, formaður meistaraflokksráðs kvenna, Brynjar Viggósson, formaður BUR karla, Þórdís Rúriksdóttir, formaður BUR kvenna, Ellert Ingi Hafsteinsson, Gísli Aðalsteinsson og Guðmundur St. Sigurðsson, meðstjórnendur.

Í máli formanns kom m.a. fram að iðkendur hafi verið á sjötta hundrað og í heildina hafi sumarið gengið ágætlega þrátt fyrir ýmis áföll tengd COVID-19 en þó hafi þjálfarar deildarinnar brugðist vel við með heimaæfingum með átakinu #haukarextra

Eitt af stórum verkefnum síðasta árs var mótun nýrrar námsskrár knattspyrnudeildar sem spannar þjálfun frá 8. flokk og upp í meistaraflokka deildarinnar, sem Igor Kostic, skólastjóri Afreksskólans, og Helga Helgadóttir, yfirþjálfari knattspyrnudeildar, höfðu veg og vanda af.  Þá tók knattspyrnudeildin yfir umjsón Afreksskólans og Afrekssviðsins sem eykur samlegðaráhrif hvað aðra þjálfun innan deildarinnar varðar. Þá fékk töluverður fjöldi yngri leikmanna tækifæri á úrtaksæfingum yngri landsliða sem er ákveðin viðurkenning á barna- unglingastarfi knattspyrnudeildar Hauka.

Eins og tilkynnt var um á dögunum samþykkti umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðarbæjar þann 10. febrúar sl. að fela umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út annars vegar hönnun á knatthúsi á Ásvöllum og hins vegar að vinna útboðsgögn vegna grasvalla á athafnasvæði Hauka sem er gríðarlega mikið fagnaðarefni og sýnir að bæjaryfirvöld horfa til framtíðar í samstarfi við Hauka.

Varðandi meistaraflokka knattspyrnudeildar þá hafnaði meistaraflokkur kvenna í 3. sæti Lengjudeildarinnar og meistaraflokkur karla í 5. sæti 2. deildar en markmiðið fyrir komandi tímabil er að meistaraflokkur karla og kvenna berjist um að komast upp í annars vegar Lengjudeild karla og hins vegar Pepsí Max deild kvenna.

Þá þurfi að fjölga tekjuleiðum og samstarfs- og styrktaraðilum deildarinnar til þess að efla annars vegar barna- og unglingastarfið enn frekar og hins vegar til að treysta tekjugrundvöll meistaraflokka deildarinnar. Einnig þarf að fjölga sjálfboðaliðum sem koma að annars vegar einstökum verkefnum og hins vegar að heimaleikjum meistaraflokka sem og að efla enn frekar skipulag og sjálfbærni knattspyrnudeildar sem ný stjórn mun móta.

Í máli gjaldkera deildairnnar fækkaði öflugum styrktaraðilum á síðasta ári sem rekja má beint til COVID-19 sem skapaði verulegan tekjusamdrátt. Með styrkjum frá KSÍ og ÍSÍ, sölu á leikmönnum og ákveðnum fjáröflunum auk töluverðra aðhaldsaðgerða í rekstri náðist að standa við allar launaskuldbindingar varðandi meistaraflokka fyrir síðasta ár ásamt því að rekstur barna- og unglingastarfsins er í ágætum farvegi. Engu að síður er reksturinn almennt í járnum, m.a. vegna fækkunar á öflugum samstarfs- og styrktaraðilum. Með fjölgun iðkenda, m.a. með tilkomu knatthúss, mun rekstur barna- og unglingastarfsins verða enn traustari.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…