Verkefni um andlega heilsu iðkenda Hauka að hefjast

Nýverið samþykkti aðalstjórn Hauka að taka þátt í verkefni sem miðar að því að bæta andlega heilsu iðkenda. Bára Fanney Hálfdanardóttir, Kristín Fjóla Reynisdóttir og Gerður Guðjónsdóttir hafa umsjón með verkefninu og er það styrkt af Minningarsjóði Ólafs Rafnssonar. Bára Fanney er sálfræðingur, Kristín Fjóla mun útskrifast úr læknisfræði í vor og Gerði þekkja allir Haukamenn en hún var eiginkona Ólafs Rafnssonar heitins. Börnin þeirra hafa spilað fyrir hönd Hauka og þekkir hún því vel starfsemina innan félagsins. Bára Fanney og Kristín Fjóla hafa unnið að fræðslu fyrir þjálfara, foreldra og iðkendur. Markmiðið með verkefninu er að allir þjálfarar félagsins fræðist um andlega heilsu iðkenda og mikilvægi hennar. Fræðslukvöld verða einnig fyrir foreldra iðkenda.

Að þessu sinni mun áherslan vera á unglingana okkar og munu þau sitja tvo fyrirlestra þar sem fjallað verður um andlega heilsu, neikvæðar hugsanir og markmiðasetningu í íþróttum og gera verkefni því tengdu. Eftir fyrirlestrana verður boðið upp á einstaklingsráðgjöf fyrir þá sem það kjósa. Andleg heilsa  og vellíðan íþróttamanna skiptir afar miklu máli og hefur sem betur fer verið meira í umræðunni á síðustu misserum en áður. Með þessu verkefni vonast félagið að iðkendur Hauka finni bæði fyrir  stuðningi og skilningi á líðan þeirra hvort sem er um að ræða andleg eða líkamleg líðan.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…