Haukar íslandsmeistarar í unglingaflokki 2017

haukarunglingaflokkur (1)Haukar urðu íslandsmeistarar í unglingaflokki karla í gær eftir spennusigur á móti KR þar sem úrslit réðust ekki fyrr en á síðustu sek. leiksins, en strákarnir tryggðu sér sigurinn á ævintýralegan hátt í lokin.

Sömu lið kepptu til úrslita í unglingaflokki og kepptu síðustu helgi í drengjaflokki, Haukar – KR, og þá höfðu Haukar líka sigur í spennandi leik þar sem úrslit og þróun leiks var svipuð, Haukar komust yfir í lokin, en KR leitt mest allan leikinn.
Leikurinn í gær var spennandi frá fyrstu mínútu og var ljóst að leikmenn liðanna voru með hátt spennustig þar hittni utan að velli var ekki mjög góð. KR treysti á skot fyrir utan á meðan að Haukar spiluðu mikið inní teig á sína stóru leikmenn. Bæði lið eru skipuð leikmönnum sem hafa verið að spila stór hlutverk hjá mfl. félagsins og var því búist við skemmtilegum leik.
KR leiddi mest allan leikinn og voru mest 10 stigum yfir en þeir leiddu með 4-10 stigum alveg fram að lok þriðja leikhluta er Haukar jöfnuðu, og var jafnt 51-51 fyrir loka fjórðung. KR náði aftur 10 stiga forystu í þeim fjórða en svo fóru Haukastrákarnir í gang og náðu að komast í fyrsta skipti yfir þegar 30 sek. voru eftir og tryggðu sér glæsilegan sigur. 77-73.

Vörnin var frábær í leiknum og spiluðu strákarnir gríðarlega fasta vörn á lykilmenn KR og þar fyrir aftan biðu stóru leikmenn Haukanna eftir þeim. Stóru strákarnir, Kristján Leifur Sverrisson skoraði 24, stig og tók 11 fráköst brekiog svo var Breki Gylfason valinn maður leiksins, en hann skoraði 28 stig og tók 11 fráköst.

Haukar eiga nú Íslandsmeistara í tveim elstu flokkum karlameginn, bikarmeistara og silfurhafa kvennameginn í elsta flokki og má því segja að framtíðin sé björt. Frábært yngri flokka starf deildarinnar er að skila sér og það verður gaman að fylgjast með þessum efnilegu leikmönnum strax á næsta ári.

Áfram Haukar.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…