Haukar mæta Huginn í fimmtu umferð Inkasso deildarinnar á laugardaginn kl. 14:00 og fer leikurinn fram á Ásvöllum.
Okkar strákar eru sem stendur í 9. sæti deildarinnar með fjögur stig á meðan Huginn situr í sæti neðar með þrjú stig.
Það er um afar mikilvægan leik að ræða og stuðningur Hauka-fólks skiptir miklu máli.
Fjölmennum á Ásvelli og hvetjum okkar stráka til sigurs.
Áfram Haukar!