Geta tryggt sér Íslands- meistaratitilinn í kvöld

haukar kvennaFjórði leikur i viðureign Hauka og Snæfells fer fram í kvöld kl. 19:15 í Hólminum og með sigri geta Haukastúlkur tryggt sér titilinn en staðan er 2-1 fyrir Hauka.

Haukarnir unnu síðasta leik í Schenkerhöllinni á ævintýralegan hátt í framlengdum spennu þriller. Eftir slaka byrjun þá stigu stelpurnar upp og spiluðu gríðarlega vel en þó engin eins og Helena, en hún skoraði 45 stig og setti um leið stigamet í efstu deild kvenna. Bætti metið um 11 stig, ótrúlegur leikmaður og það á meidd á kálfa.

Eins og áður segir geta stelpurnar okkar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í kvöld og við hvetjum allt Haukafólk til að fjölmenna í Hólminn, fá sér góðan sunnudagsbíltúr og horfa á skemmtilegan körfubolta. það verður enginn svikinn af því.

Þeim sem vantar far geta farið inná FB síðu körfunnar og sett þar inn færslu og reynt verður að koma öllum fyrir.  https://www.facebook.com/groups/762315913858012/

Áfram Haukar

ATH, myndin er fengin af FB síðu hjá Evu Björk en hún hefur tekið gríðarlega margar skemmtilegar og fallegar myndir af íþróttaviðburðum hjá okkur Haukamönnum og þökkum við henni fyrir það.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…