Leikur nr. II hjá stelpunum á laugardaginn kl. 18:00 í Grindavík

helenaStelpurnar spila við Grindavík á útivelli á laugardaginn kl. 18:00 og þetta er gríðarlega mikilvægur leikur og því hvetjum við Haukafólk til að gera sér ferð suður með sjó, til Grindavíkur og hvetja stelpurnar til sigurs.

Haukarnir lágu á heimavelli i fyrsta leik eftir að hafa leitt leikinn alveg fram undir lok fjórða leikhluta en þá tók Grindavík öll völd og náðu að knýja fram sigur. Haukastúlkur náðu ekki að sýna sitt rétta andlit í þessum leik og var eins og það vantaði smá stemningu í liðið og að pressan hafi verið of mikil. Liðið á nóg inni en ljóst er að þær þurfa að koma betur stemmdar í leikinn í Grindavík en þær gerðu í síðasta leik.

Liðið er nógu gott til að fara til Grindavíkur og ná í sigur, en þær þurf að koma ákveðnari til leiks en þær gerðu í leik nr. I.

Stelpurnar eru ákveðnar í því að komast aftur á sigurbraut og við hvetjum stuðningsfólk Hauka til að mæta vel á leikinn og styðja við bakið á stelpunum.

Áfram Haukar.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…