Haukar heimsækja Keflavík í kvöld

haukur óskarsHaukar heimsækja Keflavík í kvöld og munu spila við heimamenn kl. 19:15 og er leikurinn í beinni útsendingu á Stöð2.

Bæði lið unnu sigur í fyrstu umferðinni. Haukar unnu sanngjarnan og auðveldan heimasigur á Snæfell með 26 stiga mun og þurftu í raun ekki að hafa mikið fyrir þeim sigri. Keflavík vann baráttusigur á Þór Þorlákshöfn á útivelli og spiluðu mjög vel.

Keflvíkingar hafa á að skipa góðu liði í ár, lágvöxnu lið sem leggur sig fram og spilar af mikillri ákefð og hafa nokkuð breiðan hóp góðra leikmanna á að skipa. Haukarnir þurfa að koma vel tilbúnir í þennan leik og vera tilbúnir í mikla baráttu á öllum vígstöðum. Ljóst er að þetta verður gríðarlega erfiður leikur og strákarnir þurfa að koma vel tilbúnir í þennan leik og sýna að þeir ætli að vera á toppnum í vetur.

Við hvetjum alla til að gera sér ferð um Reykjanesbrautina og hvetja strákan til sigurs í þessum mikilvæga leik en ef fólk kemst ekki þá er hægt að horfa á leikinn í beinni útsendingu á Stöð2.