Málum bæinn rauðan!

kjartanÁgætu Haukar!

Á morgun kl. 16 í Schenker höllinni verður háður oddaleikur úrslitarimmu Hauka og Keflavíkinga. Í tilefni dagsins verður öllu tjaldað til enda um beina útsendingu að ræða og nokkuð síðan að karlalið Hauka hefur verið í þetta góðri stöðu. Haukar eru með ungt lið – flestir eru á aldrinum 17-23, strákar sem uppaldir eru hjá félaginu. Haukar hafa undir forystu Ívars Ásgrímssonar og Emils Arnar Sigurðarsonar, og með stuðningi Haukafólks, snúið taflinu við í undanförnum leikjum þar sem að ungir og upprennandi leikmenn hafa látið að sér kveða.

Haukur Óskarsson hefur komið sterkur inn að undanförnu auk þess að Kristinn Marínósson átti stórleik og að mörgu leyti réði baggamuninn í síðasta leik í Keflavík. Leikurinn var þó langt frá því að vera vel spilaður af hálfu Haukanna. Í næsta leik eiga Haukamenn inni þá Emil Barja, Kára Jónsson og Helga Björn Einarsson sem létu vægast sagt lítið fyrir sér fara í síðasta leik. Á meðan Keflvíkingar eru komnir með bakið upp við vegg þá eru Haukar á skriði sem ekki sér fyrir endann á. Nú láta Haukar kné fylgja kviði!

Haukamenn erum afskaplega ánægðir með árangurinn af því uppbyggingarstarfi sem hefur átt sér stað undanfarin ár. Í bikarúrslitum KKÍ áttu Haukar fimm lið en það bera merki þess að unnið sé gott starf í Hafnarfirði. Slík uppbygging gerist ekki án stuðnings frá samstarfsaðilum, bæjaryfirvöldum og ekki síst öllu því Haukafólki sem leggur hönd á plóginn. Stjórn deildarinnar skorar á alla þá sem áhuga hafa á íþróttum að mæta og hvetja Haukastrákana áfram. Stuðningur frá pöllunum getur gert útslagið.

Nú stöndum við sem aldrei fyrr við bakið á þeim og að sjálfsögðu öll í RAUÐU!

Áfram Haukar,

Kjartan Ásmundsson
Formaður körfuknattleiksdeildar Hauka

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…