Haukar – Þór Þ. í kvöld kl. 19:15

Haukur hefur verið að spila vel í veturÞór Þorlákshöfn kemur í heimsókn í Schenkerhöllina í kvöld kl. 19:15 í Dominos deild karla.

Haukarnir áttu ekki góða síðustu viku er þeir töpuðu tveim leikjum á útivelli á móti Stjörnunni, í bikar og í deild. Strákarnir eru staðráðnir í því að komast aftur á sigurbraut og halda sér við topp deildarinnar. Haukarnir eru taplausir á heimavelli og hafa unnið síðustu þrjá heimaleiki mjög örugglega og eru allir staðráðnir í því að halda áfram sigurgöngu á heimavellinum.

Þórsarar hafa unnið tvo leiki af fimm. Allir leikirnir hjá þeim hafa verið miklir baráttuleikir og því má örugglega búast við miklum baráttuleik í kvöld. Þórsarar vilja spila hraðan leik, en þeir pressa stíft maður á mann allan völl og eru með marga góða skotmenn innan sinna raða.

Grillið verður á sínum stað fyrir leik og hvetjum við stuðningsmenn til að mæta snemma, fá sér börger og hita vel upp fyrir leikinn. Eftir leik mun nýr formaður kkd. Hauka, Kjartan Freyr Ásmundsson,  ræða við stuðningsmenn okkar í Haukum í horni en auk þess mun þjálfari kk. og kvk. liðsins, Ívar Ásgrímsson, mæta og halda smá tölu um árangurinn sem af er, markmiðin og annað er viðkemur liðunum. 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…

Haukar – Þór Þ. í kvöld kl. 19:15

Nær Emil enn einni þrennunni í kvöld ?Haukar fá Þór Þorlákshöfn í heimsókn í Schenkerhöllina á kvöld kl. 19:15. Leikurinn er afar mikilvægur því bæði lið eru í baráttunni um að ná heimavallarétt í úrslitakeppninni.

Haukar geta tryggt sér fimmta sætið með sigri í kvöld og haldið áfram pressu á Njarðvíkinga í baráttunni um heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Leikurinn er því afar mikilvægur fyrir bæði.

Haukastrákarnir hafa verið að spila vel í síðustu leikjum og hafa unnið fjóra leiki í röð í deildinni og tókst það frækna afrek að leggja bæði lið Reykjanesbæjar á einni viku. Fyrst Njarðvík á heimavelli með 11 stigum og svo Keflavík á útivelli með 9 stigum.

 Haukar unnu stórsigur á Þór er liðin mættust síðast í deildinni en töpuðu svo í 8 liða úrslitum í Þorlákshöfn. Haukar sitja í fimmta sæti fyrir leikinn með 11 sigra og 8 töp en Þórs liðið situr í 6 sæti með 10 sigra og 9 töp. Þórsara geta því náð Haukum að stigum með sigri en þurfa að sigra með 29 stigum til að komast yfir okkar stráka á töflunni.

Nú þurfa strákarnir stuðning og því hvetjum við alla stuðningsmenn Hauka að mæta og hvetja strákana til sigurs í þessum mikilvæga leik.