Tvö Haukalið eru í eldlínunni um helgina á úrslitahelgi yngri flokka í körfubolta. Að þessu sinni er leikið í Njarðvík og spila stelpurnar í 9. flokki og strákarnir í 10. flokki til undanúrslita.
Stelpurnar mæta Tindastóli kl. 9.00 í fyrramálið og strákarnir mæta heimamönnum í Njarðvík kl. 13.30.
Allir leikir helgarinnar eru í beinni útsendingu á netinu en slóðina má málgast hér.
Vonandi komast sem flestir að hvetja krakkana okkar áfram um helgina.
Áfram Haukar!