Yfirþjálfari yngri flokka

Haukar

Körfuknattleiksdeild Hauka leitar að yfirþjálfara yngri flokka sem þjálfa mun 3 til 4 yngri flokka félagsins, þjálfa í afreksskóla Hauka ásamt að kenna og þjálfa við Íþróttaakademíu Hauka og Flensborgarskólans. Yfirþjálfari hefur einnig yfirumsjón með gæðum þjálfunar yngri flokka og fylgir og viðheldur þjálfunarhandbók Hauka og metur frammistöðu allra iðkennda í samstarfi við viðkomandi þjálfara.  Um er að ræða fullt starf.

Haukar leggja mikinn metnað í öflugt starf yngri flokka félagsins.  Félagið mun áfram á næsta keppnistímabili senda flokka til keppni í öllum aldursflokkum drengja og stúlkna en Haukar eiga í dag lið í A-riðli í öllum flokkum drengja og stúlkna og áttu um síðustu áramót 17 leikmenn í landsliðshópum yngri landsliða.  Starf yfirþjálfara er mikilvægasti hlekkurinn í þessari öflugu starfsemi.

Haukar leita eftir þjálfara með íþróttafræðimenntun eða mikla reynslu af þjálfun. Umsóknir óskast sendar í tölvupósti til Marinellu Haraldsdóttur mrh hjá uts.is  formanns barna- og unglingaráðs fyrir kl 16:00 föstudaginn 12 apríl n.k.  Ívar Ásgrímsson yfirþjálfari yngri flokka gefur nánari upplýsingar um starfið í síma 861 2928 eða á ivar hjá haukar.is

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…