Strákarnir í 10.flokki voru að ljúka leik um 5 sætið á Scania Cup mótinu í Svíþjóð með frábærum 23 stiga sigri 78-55 á finnska liðinu Ura. Strákarnir hafa staðið sig gríðarlega vel á mótinu og unnu 5 af 7 leikjum sínum og það með töluverðum mun. Sem dæmi unnu Haukastrákar fjórfalda Scania Cup meistara Alvík með 45 stiga mun 75-30 í undanriðlinum. Haukar voru mjög nálægt því að vinna sér rétt til að spila i undanúrslitum mótsins en naumt tap á móti Jarva sem spilar til úrslita á mótinu gerði út um vonir strákanna um sæti í undanúrslitum.
Með þessum frábæra árangri sýndu strákarnir að Haukar eiga eitt af sterkustu liðum Norðurlanda í þessum aldursflokki og sendu einnig landsliðsþjálfara Íslands í þessum aldursflokki skýr skilaboð. Hér má lesa nánar um leiki liðsins á mótinu.