Haukar – KR mætast í Powerade bikarnum á sunnudag

Ágætu Haukafélagar, gleðilegt nýtt körfuboltaár og takk fyrir það gamla.
 
Á sunnudaginn, 8.janúar taka Haukastúlkur á móti KR í 16 liða úrslitum Poweradebikars kvenna,  það er óhætt að segja að þetta sé stórleikur umferðarinnar, enda þarna lið á ferðinni sem í dag eru í þriðja og fjórða sæti í IE deildinni.  Leikurinn fer fram á heimavelli Hauka, DB Schenker höllinni (Ásvöllum) og hefst eins og áður segir klukkan 19:15. 

Það verður allt kapp lagt á að gera umgjörð leiksins sem besta og munu meðal annars yngstu iðkenndur körfunnar í kvennaflokki leiða hetjurnar úr meistaraflokki inn á völlinn í kynningu.  Það verða í boði Haukahamborgarar frá kl. 18:45 og því engin ástæða að standa í eldamennsku heimavið.  Milli leikhluta verða í boði spennandi skotleikir þar sem fólk getur unnið sér inn veglega vinninga.  Haukar í horni fá svo eitthvað góðgæti í VIP stúkunni og því margt í boði á þessum stórleik.
 
Við hvetjum alla til að mæta og tryggja Haukum áframhaldandi þátttöku í þessari skemmtulegu bikarkeppni.  Einnig er mikilvægt að fólk mæti snemma til að forðast biðraðir og sjá ungu stúlkurnar okkar arka inn á völlinn í fylgd þeirra eldri, þegar liðin verða kynnt, en yngstu stelpurnar taka einnig þátt í Actavis móti Hauka þennan sama dag.
 
Koma svo HAUKAR !!!
Kvennaráðið.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…