Hayward Fain kemur í stað Shulers

 Jovanni Shuler sem leikið hefur með Haukum í IE-deild karla það sem af er tímabili óskaði eftir lausn undan samningi og hafa Haukar fundið eftirmann hans. Sá heitir Hayward Fain og lék með Tindastóli á síðustu leiktíð.

Pétur Rúðrik Guðmundsson, þjálfari Hauka, sagði í samtali við Haukasíðuna að Fain væri góður liðsmaður sem legði sig allan fram í leiknum.
„Fyrir um viku síðan ákvað Jovanni Schuler að hann vildi yfirgefa liðið og hverjar sem ástæðurnar eru þá er ekki farsælt að reyna að halda í leikmenn sem vilja fara út. Þannig að við hófum leit af eftirmanni hans. Eftir miklar þreifingar var ákveðið að fá til liðs við okkur Hayward Fain sem spilaði með Tindastóli síðasta keppnistímabili,“ sagði Pétur.

„Ég man sjálfur eftir að hafa spilað á móti Fain sem aðstoðarþjálfari og þetta er hörkuleikmaður. Hann virkaði þá á mig sem mikill keppnismaður og góður liðsmaður sem leggur sig allan fram í leikinn. Hann er mjög fjölhæfur leikmaður sem getur spilað flest allar stöður á vellinum bæði í vörn og sókn.“

Pétur segir að vegna þess hve margar stöður á vellinum Fain getur leyst muni það gefa Haukaliðinu aukna möguleika í þeirra leik og að framundan sé að koma Fain inn í Haukamenninguna.

„Það að fá Fain mun gefa okkur aukna möguleika í leik okkar sem ég er mjög ánægður með. Framundan eru mikilvægir leikir í bæði deild og bikar, þó að áherslan sé núna á næsta leik sem að er gegn Val enda er sá leikur gríðarlega mikilvægur fyrir okkur. Næstu æfingar verða notaðar til að koma Hayward inn í kerfin okkar og leyfa honum að kynnast strákunum og þeirri menningu sem við höfum í Haukunum. Ég er mjög ánægður með að hafa fengið svona öflugan leikmann til okkar og er sannfærður um að hann muni hjálpa okkur að snúa þróuninni við og skila okkur sigrum,“ sagði Pétur að lokum.

Hjá Tindastóli var Hayward Fain að skila 20 stigum í leik, 9,8 fráköstum og 4,2 stoðsendingum í leik að meðaltali

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…