Unglingaflokkur í bikarúrslit

Emil Barja var með þrefalda tvennuUnglingaflokkur Hauka vann góðan 26 stiga úti sigur á FSU í undanúrslitum bikarsins, 82-108 og munu því leika í úrslitum aðra helgi gegn sameinuðu liði Hamars og Þórs Þorl. Haukastrákarnir áttu allir mjög góðan dag og spiluðu gríðarlega vel jafnt í sókn sem vörn.


Fyrri hálfleikur var mjög jafn þó svo að Haukarnir leiddu mest allan tíman með fjórum til sjö stigum. Gríðarlega góð þriggja stiga nýting hjá FSU hélt þeim inní leiknum, en þeir hittu úr níu þriggja stiga skotum í fyrri hálfeik og var Valur Orri Valsson þeim erfiður ljár í þúfu í fyrri hálfleik. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 21-24 okkar mönnum í vil og í hálfleik leiddu Haukamenn með tveimur stigum, 52-54.

Ljóst var að það þyrfti að stöðva þriggja stiga skotin og að þreyta Val Orra sem hafði verið allt í öllu hjá FSU. Vörnin varð betri í síðari hálfleik hjá Haukastrákunum og hittni FSU varð ekki eins góð og í fyrri hálfleik. Munurinn jókst smátt og smátt og var mest 17 stig en FSU náði að minnka muninn í 10 stig undir lok þess þriðja.  Í fjórða leikhluta jókst svo munurinn en frekar og varð hann mestur 26 stig.  Frábær seinni hálfleikur hjá strákunum og ljóst að unglingaflokkurinn væri kominn í úrslitin.

Allir 10 leikmenn komu við sögu í leiknum og skiluðu allir góðri vinnu. 

Örn Sigurðarson var stighæstur í liði Hauka en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði 33 stig og hirti 13 fráköst (12 af 18 í skotum). Haukur Óskarsson gerði 28 stig og tók 7 fráköst og Emil Barja sýndi stjörnutakta en hann var með þrefalda tvennu og skoraði 19 stig, tók 18 fráköst (9 sóknarfráköst.) og gaf 13 stoðsendingar.

 Steinar Aronsson gerði 8 stig og var með 4 stoðsendingar, Guðmundur Kári var með 8 stig, 7 fráköst og 4 stoðsendingar., Alexander Jarl 8 stig og 2 fráköst, Guðmundur Darri 2 stig, Ásgeir Einarsson 2 stig og Alex Óli 4 stoðsendingar.

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…