Iceland Express deild kvenna í kvöld, Haukar – Keflavík

Katie Snodgrass 3ja stiga meistari og leikstjórnandi Hauka ásamt Hannesi Jónssyni formanni KKÍÁgæta Haukafólk.Við minnum á stórleik Hauka og Keflavíkur í Iceland Express deild kvenna á Ásvöllum í kvöld 9.febrúar kl. 19:15.  Haukar er nú að spila í A-riðli milliúrslita Iceland Express deildarinnar, ásamt Hamri, Keflavík og KR.  Eins og staðan er núna eru Haukar með 12 stig í fjórða sæti, en Keflavík með 24 stig í öðru sæti.  Það er því við gott lið að eiga,  en það er klárlega kominn tími til að Haukar fari að landa sigri. Minnum á barnapössun frá klukkan 19 og að venju verður kaffi og með því í hálfleik fyrir Hauka í horni. 

Allir að mæta stundvíslega á Ásvelli, fylgjast með kynningu liðana og hvetja Hauka til sigurs.

 Áfram Haukar !!!