8. flokki karla tókst ekki að rífa sigu upp um riðil

Haukar

8. flokkur karla spilaði um síðustu helgi á fjölliðamóti og það í B-riðli. Leikið var í Seljaskóla og var markmið drengjanna að fara aftur upp í A-riðil en þaðan féllu þeir eftir fyrsta mót með einn sigur og tap eftir framlengingu.

Fyrsti leikur var á móti Stjörnunni. Strákarnir byrjuðu ágætlega og var Kári Jónsson að skora mikið en aðrir voru ragir og þorðu ekki að taka af skarið. Haukar leiddu allan fyrri hálfleikinn og voru 8 stigum yfir í hálfleik.
Í þriðja leikhluta náðu Stjörnumenn að minnka muninn og náðu að jafna í fjórða leikhluta og þurfti að framlengja. Stjörnumenn náðu yfirhöndinni en Haukar náðu svo að jafna og því þurfti að framlengja í annað sinn. Haukastrákar náðu að klára leikinn og ljóst var eftir þennan leik að við vorum ekki upp á okkar besta bæði í vörn og sókn

Annar leikur var á móti Tindastól og þá komu strákarnir mun betur stemmdir til leiks og vannst öruggur 20 stiga sigur þar sem allir voru að leggja eitthvað af mörkum.

Fyrsti leikur á sunnudeginum var gegn heimamönnum í ÍR sem voru búnir að tapa bæði á móti Stjörnunni og Tindastól. Kári var hvíldur alveg í öðrum og fjórða leikhluta og átti það að vera til þess að aðrir færu að taka við keflinu og gera meira en því miður þá voru strákarnir ekki að leggja sig nógu mikið fram bæði í vörn og sókn. Haukar unnu samt leikinn með fimm stiga mun en ljóst að þeir þyrftu mikið að laga til þess að vinna úrslitaleikinn gegn Njarðvík.

Síðasti leikurinn var gegn Njarðvík og var jafnframt úrslitaleikur um hvort liðið færi upp. Njarðvík byrjaði strax á því að taka Kára úr leiknum og lent Haukaliðið í miklum vandræðum í þessum leik. Njarðvíkingar voru að spila harðan varnarleik og Haukastrákar að bakka frá þeim og byrjuðu að væla, sem hefur aldrei reynst árangursrík aðferð. Kári faldi sig og aðrir stigu ekki upp og tap staðreynd  með 20 stigum og Haukar því áfram í B riðli

„Það er margt sem þarf að laga og ljóst að það verða fleiri að koma inn hjá okkur og leggja meira af mörkum. Lykilmenn voru alveg týndir þessa helgi og það þarf að laga. Við þurfum líka að laga baráttu og menn þurfa að fara að leggja sig meira fram, bæði í vörn og sókn“ sagði Ívar Ásgrímsson þjálfari Hauka eftir helgina.

Strákarnir voru svekktir í lokin og eru staðráðnir í því að komast í A riðil fyrir úrslitin og allir ætla að leggja meira af mörkum.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…