Matthías Rúnarsson: Þetta er skrítin tilfinning

Matthías við undirskrift á dögunumMatthías Rúnarsson leikmaður Hauka er uppalinn Sauðkrækingur og lék með liði Tindastóls upp alla yngri flokkana og upp í meistaraflokk. Matti eins og hann er alltaf kallaður er því að mæta uppeldisliðinu í fyrsta skipti en hann hefur ekki leikið neins staðar annars staðar fyrir utan lið Randers er hann bjó í Danmörk.

„Þetta er mjög skrítin tilfinning og í raun alveg nýtt fyrir manni“ sagði Matti þegar síðan heyrði í honum hljóðið. „Fyrsta tilfinning er að það er meiri áhugi að vinna þennan leik, meiri áskorun en maður ber mikla virðingu fyrir sínu gamla liði“ bætti hann við.

Matti spilaði ekkert með liði Tindastóls á síðustu leiktíð fyrir utan einn leik en brjóskskemmdir í hné gerðu það að verkum að hann spilaði ekki meira með. „Ég fór í aðgerð í apríl á þessu ári og þetta lítur út fyrir að ætla að hanga í lagi en það verður bara að koma í ljós“ segir Matti þegar hann er spurður út í meiðslin.

Matti segir að það sé hugur í mönnum og mikilvægt að sigra leikinn.  „Ef við sigrum þennan leik þá erum við í góðum málum fyrir famhaldið“

Spurður út í leikinn gegn Hamri hafði Matti þetta að segja:  „Það er mjög sætt að byrja mótið með tveimur stigum og mjög sterkt að hafa náð að klára leikinn þrátt fyrir viðsnúninginn sem átti sér stað í fjórða leikhluta“ og á Matti við um atvikið þegar að Haukar misstu niður 11 stiga forskoti og lentu undir gegn Hamri. „Þetta sýnir að hópurinn er þéttur og líklegur til alls“

Matthías og félagar taka á móti Tindastóli í kvöld kl. 19:15 á Ásvöllum.

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…