Tæpt í Grindavík

Semaj Inge og Haukur Óskarsson að kljást við leikmenn GrindavíkurÞað mátti litlu muna að Haukar hefðu lagt Grindvíkinga í kvöld þegar liðin mættust í fyrstu umferð Lengjubikarsins í Grindavík. Bæði lið voru að spila fínan bolta og var ekki að sjá að árlegur haustbragur væri á liðinum eins og oft vill vera í þessari keppni. Leikurinn var jafn frá fyrstu mínútu og má í raun segja að óheppni í bland við pínu klaufaskap hafi orðið þess valdandi að Grindavík vann þriggja stiga sigur á Haukum 89-86.

Semaj Inge var besti maður Hauka í annars frekar jöfnu liði en allir sem komu við sögu í Haukaliðinu komust á blað og voru að spila á lögum köflum góðan körfubolta. Gerald Robinson var ískaldur í sókninni en átti fínan leiki í vörn og skilaði tók ein 15 fráköst.

Inge lagði grunn að varnarleik Hauka þegar hann varði skot Páls Axels Vilbergssonar í fyrstu sókn heima manna. Grindvíkingar byrjuðu annars leikinn af miklum krafti og náðu níu stiga forystu strax í fyrsta leikhluta 26-19 en Haukar bitu frá sér og minnkuðu muninn fyrir loka leikhlutans sem endaði 26-22. 

Haukar komust þremur stigum yfir í öðrum leikhluta og skiptust liðin á að hafa forystu út hlutan. Haukar leiddu með einu stigi í hálfleik 44-45 og var ljóst að þeir ætluðu sér að selja sig dýrt í sínum fyrsta fyrirtækjabikarleik í fjögur ár. 

Þegar komið var inn í lok fjórða leikhluta var allt á nálum. Haukar leiddu með einu stigi þegar innan við tvær mínútur voru eftir og Grindavík var í sókn. Sókn þeirra fjaraði út og Haukar héldu til sóknar sem skilaði ekki körfu. Brotið var á leikmanni Grindavíkur sem fór á vítalínuna og setti niður bæði skot sín og snéri stöðunni úr 85-86 í 87-86. Haukar héldu til sóknar en vörn Grindvíkinga hélt og þeir náðu boltanum. Aftur var brotið á heimamanni sem setti niður bæði vítin og staðan því 89-86 og aðeins fimm sekúndur eftir. Haukar tóku leikhlé og byrjuðu því með boltan á miðju. Boltinn barst í hendurnar á Hauki Óskarssyni sem hafði verið heitur fyrir utan en skot hans geigaði og Grindvíkingar fögnuðu sigri.

Haukaliðið barðist vel á báðum endum vallarins en því miður þá fór sem fór. Þrátt fyrir mörg klikkuð skot og þá sérstaklega á vítalínunni héldu Haukar sér inn í leiknum sem lýsir hvað best baráttu þeirra í leiknum. Eins og fyrr segir þá var Gerald Robinson ískaldur í sókninni en það verður áhugavert að fylgjast með honum í komandi leikjum og má segja að Haukar hafi alveg átt hann inni.

Semaj Inge skoraði 32 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar og Haukur Óskarsson var með 11 stig. Sævar Ingi Haraldsson gerði 10 stig og Gerald Robinson 9 stig og 15 fráköst.

Tölfræði leiksins

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…