Íris Sverrisdóttir til Hauka

Haukar

Áfram halda leikmenn að streyma til Hauka en í gær skrifaði bakvörðurinn Íris Sverrisdóttir undir samning við félagið. Íris er fjórði leikmaðurinn sem gengur til liðs við Hauka fyrir komandi leiktíð en fyrir voru þær Þórunn Bjarnadóttir, Val, og Snæfellingarnir Gunnhildur Gunnarsdóttir og Unnur Lára Ásgeirsdóttir   búnar að klára samning við Haukaliðið.

Íris er uppalin Grindvíkingur og hefur leikið með þeim í efstu deild í þó nokkurn tíma. Hún gerði 8,8 stig að meðaltali í leik á síðustu leiktíð, var með 4,3 fráköst og 3,5 stoðsendingar í leik.

Henning Henningsson var að vonum ánægður með að fá Íris til liðs við Hauka og sagði hún væri kærkomin viðbót við þann öfluga hóp sem fyrir væri og að þetta yrði örugglega skemmtilegt tímabil.

„Ég er gríðarlega ánægður með að fá Írisi til Hauka og að sjálfssögðu þær Þórunni, Gunnhildi og Unni líka því  við erum ekki að taka á móti neinum prímadonnum heldur stelpum sem eru hörkuduglegar og tilbúnar að leggja mikið á sig og spila fyrst og fremst fyrir liðið“.

„ Við erum líka, eins og allir vita, með gríðarlega efnilega leikmenn í Haukum en þeim hópi þarf að hlúa að og eru þær stelpur að sjálfssögðu hluti af meistaraflokknum og munu halda áfram að styrkjast og þroskast. “

Haukar urðu íslandsmeistarar í unglinga og stúlknaflokki á síðustu leiktíð og því nóg af efniviði innan félagsins. Til að skapa næg verkefni fyrir allar þessar stelpur segir Henning að Haukar muni tefla fram tveimur meistaraflokksliðum á næstu leiktíð en ákveðið hefur verið að vera með lið einnig í 1. deild kvenna.

„Það verða ærin verkefni fyrir allar stelpurnar í hópnum, mikið leikálag og nóg af leikjum fyrir allar“.

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…