18 stiga forysta í hálfleik dugði ekki til

Haukar mættu Þór frá Þorlákshöfn í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum um laust sæti í Iceland Expressdeildinni á næsta tímabili. Haukar voru í miklu stuði í upphafi leiks og komust fljótt í þægilegt forskot. Munurinn á liðunum var 18 stig í hálfleik og var ekkert sem benti til þess að Þórsarar væru að fara að sýna einhverja snilldartakta í leiknum.

Leikmenn Þórs komu mun betur stemmdir í seinni hálfleik og smátt og smátt minnkuðu þeir mun Hauka. Lokamínútur leiksins urðu afar spennandi og endaði leikurinn þannig að Þór vann eins stigs sigur, 55-56 eftir að hafa skorað sigurkörfuna af vítalínunni þegar 19 sekúndur voru eftir af leiknum.

Stigahæstur í liði Hauka var Óskar Ingi Magnússon með 15 stig og Helgi Einarsson og Semaj Inge voru með 11 hvor.

Næsti leikur liðanna er á mánudaginn kl. 19:15 í Þorlákshöfn.

Umjöllun um leikinn á karfan.is