Hetjuleg barátta dugð ekki til

Heiðrún átti fína innkomu af bekknum og setti mikilvægan þrist í seinni hálfleikHaukar töpuðu fyrir KR í gærkvöldi 75-79 í hörkuleik. Var þetta önnur rimma liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar kvenna. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer áfram í lokaúrslitin.

Eftir hátuðlega útreið í fyrri leik liðanna þar sem KR vann með 31 stigi ætluðu Haukastelpur ekki að láta það gerast aftur og það á heimavelli.

Bæði lið ágætlega stutt af stuðningsmönnum sínum fóru ágætlega af stað í leiknum. Þó voru KR-ingar með frumkvæðið í upphafi og náðu um tíma 11 stiga forystu í fyrsta leikhluta 7-18. Leiddu gestirnir með 12 stiga forystu 15-27 eftir fyrsta leikhluta.

KR setti fyrstu stig annars leikhluta og þá fóru kannski einhverjir að halda að leikurinn yrði endurtekning á leik nr. 1 þar sem KR rúllaði yfir Hauka. En svo reyndist ekki en með frábærri baráttu byrjuðu Haukastelpur að minnka muninn í tvö stig 29-31. Haukar fengu tækifæri til að komast yfir en nýttu það ekki og KR jók muninn á ný en Haukar komust yfir með tveimur vítaskotum frá Kiki Lund þegar 30 sekúndur voru eftir 38-37. KR-ingar. Síðustu fjögur stig hálfleiksins komu frá KR og leiddu þær 38-41 í hálfleik.

Fimm fyrstu stig seinni hálfleiksins komu frá KR og juku þær muninn upp í átta stig 38-45. Liðin skiptust á körfum næstu mínúturnar og var munurinn orðin 10 stig 41-51.

Haukar náðu að minnka muninn í tvö stig 53-55 og fengu tækifæri til að komast yfir með þriggja-stiga körfu en skotið geigaði frá Guðrúnu Ámundadóttur.

Þegar lokaleikhlutinn hófst var staðan 56-57 KR í vil og allt stefndi í rosa lokabaráttu. Fyrstu stigin komu frá KR þegar Jenny Finora setti þrist og Signý Hermannsdóttir setti sniðskot og staðan því orðin 56-62. Haukastelpur minnkuðu muninn af vítalínunni en munurinn var út mest allan hálfleikinn 4-6 stig.

KR vann að lokum í hörkuleik en Haukstelpur fengu mörg tækifæri til að komast nær KR-ingum en það tókst ekki í gærkvöldi.

Best í liði Hauka var Heather Ezell með 31 stig og Sara Pálmadóttir átti frábæran leik en hún var með 9 stig allt úr þriggja-stiga skotum. Ragna Margrét Brynjarsdóttir og Telma Fjalarsdóttir áttu erfitt uppdráttar og komust ekki í takt við leikinn. En þær voru í villuvandræðum allan leikinn og því ekki skrýtið.

Næsti leikur stelpnanna er á föstudagskvöld kl. 20.00 í DHL-höllinni.

Umfjöllun um leikinn á Karfan.is

Myndasafn á Karfan.is

Myndasafn á Vísir.is

Viðtal við Henning á Vísir.is

Viðtal við Heather á Vísir.is

Viðtal við Maríu Lind á Mbl.is

Viðtal við Söru á Mbl.is