Henning: Munum taka vel á móti vinum okkar úr hólminum

Haukar mæta Snæfelli í kvöld á Ásvöllum kl. 19:15 í Iceland Expressdeildinni. Haukasíðan heyrði í Henning Henningssyni þjálfara Haukaliðsins sem er bjartsýnn fyrir kvöldið.

Mynd: stefan@haukar.is

„Ég var að mörgu leiti nokkuð sáttur við KR leikinn þrátt fyrir tap. Vörnin var til fyrirmyndar á löngum köflum og við erum stöðugt að vinna í að slípa hlutina betur til sóknarlega” sagði Henning um síðasta leik en greinilegt batamerki var á liðinu frá því að þær mættu KR í meistara meistaranna.

„Við spiluðum tvo æfingaleiki gegn Snæfelli í haust þannig að bæði lið þekkja leikstíl hvors annars vel.  Stelpurnar úr hólminum hafa komið sterkar til leiks og eru taplausar í deildinni enn sem komið er. Það má þ.a.l. alls ekki vanmeta þær, Snæfell er ofar á töflunni en við og það er okkar að sýna að við erum með gott lið og því munum við gera allt til að freista þess að stela sigri af toppliði Snæfells” sagði Henning sem vonar að fólk fjölmenni á leikinn.

„Við munum taka vel á móti vinum okkar úr Hólminum en gestrisninni sleppir þó vonandi þegar flautað verður til leiks. Ég hvet fólk til að mæta tímanlega til að tryggja sér miða, það verður ekki forsala á aðgöngumiðum og samningar við miði.is tókust ekki, sem sagt mæta og hafa gaman af.”

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

  • Tryggjum öryggi allra á Ásvöllum.

    Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…