Þá er komin röðin að Davíði Páli Hermannssyni.
Nafn: Davíð Páll Hermannsson
Staða: Mið/framherji
Hæð: 196
Aldur: 24
Er gott að vera á Ásvöllum? Já, get ekki sagt annað
Segðu frá einhverju sem enginn veit um þig? Stal einu sinni siðasta Big Red tyggjói félaga míns
Saknar þú Fjalars? Ætla ekki að láta eins og ég viti um hvað þú ert að tala
Hvað er skemmtilegast að gera á æfingum? Slást við Rik Smits á póstinum
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum? Ekkert sérstakt, en alltaf leiðinlegt þegar manni gengur illa á æfingum
Hvernig verður tímabilið 2009-10? Mjög gott og sagt skilið við 1. Deildina